Stormur Ermahnappar

kr28,600

Litbrigði
Áletrun
Vörulýsing

Ermahnapparnir eru úr silfri, hægt er að velja um oxiderað með mattri áferð eða með rhodium, gróf en glansandi áferð. Hægt er að velja með eða án áletrunar. Áletrað er framan á hnappana. 

--

Stormur er fyrsta herralínan okkar, hún er kraftmikil eins og nafnið gefur til kynna. Skartgripirnir í línunni eru fáanlegir með mattri /ox og glansandi/rhodium áferð  - einnig er hluti línunnar fáanlegur í 14kt gulli.

Skartgripirnir eru karlmannlegir, áferðin á hráefninu er gróf en um leið mild út af dökku burstuðu áferðinni í bland við háglansandi fleti. 

Efniviður

Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum og hannaðar á verkstæði Lovísu á Íslandi.

Hvernig á að hugsa um skartgripi?

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Fyrir frekari upplýsingar um meðferð skartgripa ekki hika við að hafa samband, lovisa@bylovisa.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skilafrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með póstinunum er hægt er að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr. bæði með Póstinum og Dropp.