Við hjá BY•L viljum að gjöfin sé tilbúin til afhendingar um leið og hún kemur í hendurnar á þér. Þess vegna bjóðum við alltaf upp á fría gjafainnpökkun, bæði í verslun og á vefverslun okkar.
Á vefversluninni okkar getur þú einfaldlega hakað við Já takk undir Eigum við að pakka inn? áður en varan er sett í körfu. Þá sjáum við um að pakka skartgripnum fallega inn án aukakostnaðar.
Við bjóðum einnig upp á frítt tækifæriskort með pöntuninni. Ef þú vilt kortið og að við skrifum á það fyrir þig, láttu okkur vita í athugasemd við pöntun í körfunni og settu persónulegu skilaboðin með - við sjáum svo um restina.
Þessi þjónusta hentar vel hvort sem um er að ræða afmælisgjöf, útskriftargjöf, fermingargjöf, brúðargjöf eða bara falleg óvænt gjöf fyrir einhvern sem þér þykir vænt um.
Ef verslað er í verslun okkar bjóðum við að sjálfsögðu einnig upp á gjafainnpökkun þar á staðnum og þú getur skrifað sjálf/ur á tækifæriskortið.
Upplýsingar um gjafainnpökkun er einnig að finna neðst á vörusíðum í vefversluninni okkar, þar sem farið er yfir hvernig þjónustan virkar og hvernig skilja má eftir skilaboð með pöntun.
MEIRA SKEMMTILEGT
Frí gjafainnpökkun
Við hjá BY•L viljum að gjöfin sé tilbúin til afhendingar um leið og hún kemur í hendurnar á þér. Þess vegna bjóðum við alltaf upp á fría gjafainnpökkun, bæði í verslun og á vefverslun okkar.



