RÁÐGJÖF MEÐ GULLSMIÐ

Ertu að leita eftir sérsmíði á skartgrip, ráðgjöf við val á hringum, vilt selja eða endurnýta gull eða silfur í þinni eigu?

Í Silfursmára 8, á bakvið verslunina okkar er gullsmíðaverkstæði ásamt þremur gullsmiðum sem hafa áratugareynslu í faginu. 

Gullsmiðirnir okkar eru Lovísa Olesen, Lena Rut Kristjánsdóttir og Páll Sveinsson. Bókaðu tíma með þeim hér að neðan.

 

GULLSMÍÐAVERKSTÆÐIÐ

Á gullsmíðaverkstæðinu okkar fer öll vinnan fram undir einu þaki. Við sinnum sérsmíði, viðgerðum, breytingum, steinaísetningum, handgreftri, steypuvinnu, endursmíði og hönnun skartgripa – með áherslu á gæði, nákvæmni og handverk.

Athugið að við þjónustum alla skartgripi, ekki einungis skartgripina okkar heldur alla skartgripi úr eðalmálmum.