GAMALT GULL

Gefðu gömlum skartgripum nýtt líf

ENDURSMÍÐI ÚR GÖMLU GULLI

Gamalt gull og eldri skartgripir þurfa ekki að liggja ónotaðir í skúffunni. Hjá BY•L getur þú komið með gamla skartgripi, erfðagripi eða aðra gullgripi og skoðað með gullsmiði á gullsmíðaverkstæði BY•L hvernig hægt er að gefa þeim nýtt líf.

Við sérsmíðum og endursmíðum skartgripi og getum í mörgum tilfellum nýtt gullið, demanta og aðra eðalsteina við gerð nýs grips. Það getur til dæmis verið gamall giftingarhringur, erfðagripur eða nokkrir ólíkir skartgripir sem þú vilt sameina í eitthvað nýtt.

Hver gripur er metinn sérstaklega af gullsmiði og í samráði við þig skoðum við hvað hægt er að nýta og hvernig nýr skartgripur gæti litið út. Þannig getur sagan og persónulega gildið lifað áfram, þó skartgripurinn taki á sig nýja mynd.

HVERNIG FER ENDURSMÍÐI FRAM?

1. BÓKAÐU TÍMA MEÐ GULLSMIÐ

Komdu með gamla gullið og skartgripina sem þú vilt skoða möguleikana með.

2. MAT HJÁ GULLSMIÐ

Gullsmiður fer yfir gripina og metur hvaða gull, demanta og steina er hægt að endurnýta.

3. HUGMYND & HÖNNUN

Við mótum hugmyndina með þér og finnum leið til að nýta gömlu gripina í nýjan skartgrip.

4. NÝR SKARTGRIPUR

Gullsmiðir BY•L smíða nýjan grip þar sem gamalt fær nýtt líf.

HVAÐ ER HÆGT AÐ ENDURNÝTA ÚR GÖMLUM SKARTGRIPUM?

Margir eiga skartgripi sem eru ekki lengur notaðir en hafa samt verðmæti eða persónulega sögu. Það geta verið erfðagripir, gamlir giftingarhringar, skartgripir sem passa ekki lengur eða einfaldlega gripir sem falla ekki lengur að þínum stíl.

Í mörgum tilfellum er hægt að nýta gull, demanta og aðra eðalsteina úr eldri skartgripum við gerð nýs grips. Stundum er hægt að byggja áfram á upprunalega skartgripnum en í öðrum tilfellum hentar betur að endurhanna hann frá grunni.

Það er mismunandi hvað hægt er að endurnýta og því skoðar gullsmiður gripina fyrst og metur hvaða möguleikar eru í boði. Þú þarft því ekki að vita fyrirfram hvað þú vilt gera, komdu með gripina og við skoðum það með þér.

GAMALT VERÐUR AÐ NÝJU

Bak við gamla skartgripi leynast oft bæði verðmæt efni og persónulegar minningar. Með endursmíði er hægt að varðveita það sem skiptir máli en skapa um leið skartgrip sem hentar betur í dag.

Verkefnin geta verið mjög ólík. Stundum er gamalt gull nýtt í alveg nýjan skartgrip, stundum fá demantar eða aðrir steinar nýja umgjörð og í öðrum tilfellum er eldri grip breytt þannig að hann nýtist aftur.

Hér má sjá dæmi um skartgripi sem hafa fengið nýtt líf á gullsmíðaverkstæði BY•L.

Sýnidæmi

Add descriptive text for this column.

Sýnidæmi

Add descriptive text for this column.

VILTU SELJA GAMLA GULLIÐ?

Ef þú vilt ekki endurnýta gamla gullið getur þú einnig komið með það til okkar í BY•L til mats og sölu. Við kaupum gamalt gull og gullskartgripi af einstaklingum.

Gullið er metið meðal annars út frá hreinleika og magni og kaupverð tekur mið af verðmæti gullsins hverju sinni. Þú getur komið með gamla eða ónotaða gullskartgripi, brotna gripi og annað gull sem þú vilt láta meta.

Ef þú ert ekki viss hvort þú viljir selja gullið eða nýta það í nýjan skartgrip, getum við farið yfir báða möguleikana með þér.

ÁTTU GAMALT GULL SEM ÞÚ VEIST EKKI HVAÐ ÞÚ ÁTT AÐ GERA VIÐ?

Komdu með gripina til okkar eða bókaðu tíma hjá gullsmiði. Við skoðum hvað þú ert með, hvað hægt er að endurnýta og hvaða möguleikar eru í boði.

Hvort sem þú vilt gefa gömlum skartgrip nýtt líf, nýta gull og steina í nýjan grip eða selja gullið, hjálpum við þér að finna þá leið sem hentar.

ALGENGAR SPURNINGAR UM GAMALT GULL & ENDURSMÍÐI

Er hægt að nýta gamalt gull í nýjan skartgrip?

Já. Í mörgum tilfellum er hægt að nýta gamalt gull við gerð nýs skartgrips. Gullsmiður þarf fyrst að skoða gripina og meta gullið og hvaða möguleikar eru í boði.

Get ég látið endursmíða gamla giftingarhringi eða erfðagripi?

Já. Gamla giftingarhringi, erfðagripi og aðra gullskartgripi er oft hægt að endurhanna eða nýta við gerð nýs grips. Við skoðum gripina með þér og finnum leið sem hentar.

Er hægt að endurnýta demanta og aðra steina úr gömlum skartgripum?

Já, oft er hægt að nýta demanta og aðra eðalsteina aftur. Gullsmiður skoðar steinana og metur ástand þeirra og hvort þeir henti í nýjan skartgrip.

Þarf ég að vita hvað ég vil láta smíða áður en ég kem?

Nei. Þú getur komið með gömlu gripina án þess að vera með ákveðna hugmynd. Gullsmiður fer yfir möguleikana með þér og getur aðstoðað við hönnun og útfærslu á nýjum skartgrip.

Kaupið þið gamalt gull?

Já. BY•L kaupir gamalt gull og gullskartgripi af einstaklingum. Gullið er metið og kaupverð ræðst meðal annars af magni, hreinleika og verðmæti gullsins hverju sinni.

Get ég komið með brotna eða ónotaða gullskartgripi?

Já. Þú getur komið með brotna, slitna eða ónotaða gullskartgripi til okkar. Við getum metið hvort henti betur að endurnýta þá, endursmíða eða selja gullið.

Hvað kostar að endursmíða skartgrip úr gömlu gulli?

Kostnaður fer eftir gripnum, hönnuninni og þeirri vinnu sem þarf að framkvæma. Eftir að gullsmiður hefur skoðað gömlu gripina er hægt að fara betur yfir möguleikana og áætla kostnað við endursmíðina.

Þarf að bóka tíma til að láta meta gamalt gull?

Fyrir endursmíði og hönnun mælum við með að bóka tíma hjá gullsmiði svo hægt sé að fara vel yfir gripina og hugmyndirnar með þér. Ef þú vilt eingöngu koma með gull til sölu getur þú komið með það í verslun BY•L í Silfursmára 8 í Kópavogi.