GJAFAHUGMYNDIR

FINNDU RÉTTU GJÖFINA

ERTU EKKI VISS HVAÐ ÞÚ ÁTT AÐ VELJA?

Við hjálpum þér að finna réttu gjöfina. Skoðaðu gjafahugmyndir eftir verði, stíl, tilefni eða hverjum þú ert að gefa. 

VELDU EFTIR VERÐFLOKKI

VELDU EFTIR STÍL

Þekkir þú stílinn hennar en ert ekki viss hvaða skartgrip þú átt að velja? Skartgripalínur BY•L hafa ólíkan karakter og geta hjálpað þér að finna réttu gjöfina.

EKKI VISS HVAÐ HÚN MYNDI VELJA?

Ef þú þekkir ekki nákvæmlega hvaða skartgripi hún notar eru hálsmen og eyrnalokkar oft einfaldastir í gjöf þar sem þú þarft ekki að vita hringastærð.

Skoðaðu hvaða lit á skartgripum hún notar oftast, gyllt eða silfurlitað, og hvort skartgripirnir hennar séu yfirleitt fíngerðir eða meira áberandi. Það gefur þér góða vísbendingu um hvað hún myndi velja sjálf.

GJAFIR FYRIR STÓR TÍMAMÓT

Sum tilefni kalla á stærri gjöf. Skartgripir úr 14kt gulli og hvítagulli, með eða án demanta, eru falleg gjöf til að marka sérstök tímamót og skapa minningu sem fylgir eigandanum áfram.

MORGUNGJÖF

Morgungjöf er persónuleg gjöf sem brúðhjón gefa hvort öðru í tilefni brúðkaupsins.

Alliance hringur er að okkar mati fullkomin morgungjöf handa henni. Þú velur fjölda og stærð demanta og getur þannig gert hringinn að persónulegri minningu um daginn.

Ermahnappar eru klassísk morgungjöf handa honum. Með áletrun, til dæmis dagsetningu eða upphafsstöfum, verður gjöfin enn persónulegri.

BRÚÐKAUPSAFMÆLI

Skartgripur er falleg leið til að minnast brúðkaupsafmælis og velja gjöf sem getur fylgt eigandanum áfram um ókomin ár.

Fyrir hana eru skartgripir úr 14kt gulli eða hvítagulli með demöntum eða eðalsteinum klassískt val. Fyrir hann geta armbönd, hringar og aðrir vandaðir skartgripir verið persónuleg gjöf til að marka tímamótin.

GERÐU GJÖFINA PERSÓNULEGRI

Skartgripur getur tengst manneskju, minningu eða sérstökum tímamótum. Stafir, fæðingarblóm, demantar, eðalsteinar og áletranir geta gert gjöfina enn persónulegri. Ef þú ert með ákveðna hugmynd geta gullsmiðirnir okkar einnig aðstoðað við sérsmíði.

ALGENGAR SPURNINGAR UM GJAFIR

Er gjafainnpökkun í boði?

Já. Við leggjum mikið upp úr fallegri gjafainnpökkun og fylgir hún með öllum gjafakaupum, þá getur þú fengið skartgripinn tilbúinn til afhendingar sem gjöf.

Hvað ef viðtakandinn vill skipta gjöfinni?

Það er ekkert mál. Skiptimiði fylgir með kaupum þannig að viðtakandinn getur skipt gjöfinni ef hann vill frekar aðra stærð, annan skartgrip eða annan stíl, lestu meira um skiptifrestinn okkar hér. 

Hvaða skartgripur er öruggastur í gjöf?

Ef þú ert ekki alveg viss um smekk eða stærð eru hálsmen og eyrnalokkar oft einfalt val þar sem þú þarft ekki að vita nákvæma stærð. Skoðaðu líka hvaða skartgripi viðkomandi notar nú þegar, hvort þeir séu gylltir eða silfurlitaðir og hvort stíllinn sé fíngerður eða meira áberandi. Það gefur oft góða vísbendingu um hvað hentar.

Hvernig veit ég hvort ég á að velja gyllt eða silfurlitað?

Skoðaðu hvaða lit viðkomandi notar oftast á skartgripum. Ef flestir skartgripirnir eru gylltir er yfirleitt skynsamlegt að halda sig við þann lit og það sama á við um silfurlitaða skartgripi. Ef viðkomandi blandar þessu saman eru báðir kostir góðir. En ef þú hefur ekki hugmynd og getur ekki komist að því, þá eru gylltari skartgripir aðeins vinsælli. 

Hvað ef ég veit ekki stærðina?

Hálsmen og eyrnalokkar krefjast almennt ekki stærðarvals. Langflest armbönd BY•L eru stillanleg, yfirleitt frá um 16–23 cm. Ef þú ert að kaupa hring og veist ekki nákvæma stærð getur starfsfólk BY•L aðstoðað þig við valið en yfirleitt er bara tekin einhver stærð og viðkomandi kemur svo í mælingu til okkar. Ein stækkun eða minnkun fylgir með hringakaupum ef komið er með hringinn innan mánaðar frá afhendingu.

Þú getur líka skoðað leiðbeiningar um hringastærðir hérna.

Hvaða skartgripur hentar fyrir stærri tímamót?

Fyrir stórafmæli, morgungjöf, brúðkaupsafmæli og önnur stór tímamót eru skartgripir úr 14kt gulli og hvítagulli, með eða án demanta og eðalsteina, vinsælt val. Slík gjöf getur verið skartgripur sem fylgir eigandanum í mörg ár og tengist ákveðnum tímamótum.

Skoða gull & demanta

Hvernig get ég gert gjöfina persónulegri?

Skartgripir með stöfum, fæðingarblómum, demöntum eða eðalsteinum geta haft persónulega merkingu. Við getum einnig áletrað marga skartgripi þó það sé ekki sérstaklega tekið fram við hverja vöru, hafðu samband ef þu vilt láta áletra gjöfina. 

Ef þú ert með ákveðna hugmynd er einnig hægt að fá ráðgjöf hjá gullsmiðum BY•L um sérsmíði. Skoða betur.

Getið þið hjálpað mér að velja gjöf?

Já. Ef þú ert ekki viss hvað þú átt að velja getur starfsfólk BY•L aðstoðað þig við að finna skartgrip út frá tilefni, verði og stíl viðtakandans. Þú getur fengið ráðgjöf í verslun BY•L í Silfursmára 8 eða haft samband við okkur á byl@byl.is