INNEIGNARNÓTUR & GJAFABRÉF

Nýverið skiptum við um afgreiðslukerfi svo að nú eru bæði inneignarnótur & gjafabréf rafræn og tengd við tölvupóst hvers viðskiptavinar, sem þýðir að hægt er að nota það bæði í verslun sem og í netverslun! 

Það eru þó margir með eldri inneignarnótur og gjafabréf, sem virka þá ekki í netverslun en þá er hægt að hafa samband við okkur á byl@byl.is eða koma við hjá okkur í Silfursmáranum og við setjum þetta inn í nýja kerfið.  

Rafrænar inneignarnótur

Ef þú ert með rafræna inneign (e. store credit) og ætlar að nota hana í gegnum netverslun þarftu að skrá þig inn á "Aðgangurinn minn"  sem þú finnur uppi í hægra horninu í netversluninni við hliðina á Hjartanu og Körfunni eða neðst á síðunni undir ÞJÓNUSTA. 

Þar setur þú inn netfangið þitt og færð þá sendan innskráningarkóða. Þegar þú ert búin að skrá þig inn, þekkir netverslunin þig og birtir inneignina þína í greiðsluferlinu, á sama stað og þú velur Greiðslumáta, þú getur þá valið að nota inneignina við greiðsluna. 

Rafræn gjafabréf

Nýju gjafabréfin okkar eru með 16 stafa kóða sem þú fékkst sendan í tölvupósti eða í litlu umslagi ef viðkomandi gaf þér áþreifanlegt gjafabréf. Athugið, að gjafabréf eru alltaf send með tölvupósti þó það hafi verið gefið áþreifanlegt að auki. 

Ef gjafabréfið sem þú ert með er aðeins með þriggja til fjagra stafa númer, ertu með eldri gerðina af gjafabréfi og getur haft samband við okkur til þess að breyta því í rafræna inneign. 

Ef þú ætlar að nota nýja gjafabréfið með 16 stafa kóðanum í netverslun, setur þú inn 16 stafa kóðann á greiðslusíðunni þar sem segir: Afsláttarkóði eða gjafabréf - VIRKJA

Til þess að kanna stöðu á gjafabréfi þarftu að nota hlekkinn sem fylgir gjafabréfinu þegar það var sent á tölvupósti. Þar getur þú nálgast kóðann og stöðu á gjafabréfi. Ef þú fékkst ekki tölvupóst, fékk sá sem gaf þér gjafabréfið tölvupóstinn. 

Hægt er að yfirfæra gjafabréfið yfir á þinn tölvupóst, þá þarf sá sem gaf þér gjafabréfið að senda okkur tölvupóst á byl@byl.is og biðja um að láta flytja gjafabréfið yfir á þitt netfang. 

Einhver vandamál?

Ef þú lendir í einhverjum vandræðum með inneign eða gjafabréf, ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 792 8282 eða á tölvupóst byl@byl.is

Þú ert líka alltaf velkomin í Silfursmárann. 

Mælum með að þú kíkir á Algengar spurningar - þar sem við svörum algengum spurningum um skartgripina og þjónustuna.