ALGENGAR SPURNINGAR
Finndu svör við algengum spurningum um skartgripi, stærðir, efni og umhirðu, pantanir og þjónustu BY•L.
PANTANIR, SENDINGAR & SKIPTI
Hversu fljótt er pöntunin mín afgreidd?
Við tökum yfirleitt saman pantanir strax eftir að þær berast. Flestar pantanir eru tilbúnar til afhendingar innan 24 klukkustunda og oft mun fyrr. Afhendingartími getur þó farið eftir því hvenær dags pöntunin er gerð og hvort verslunin sé opin. Ef vara er ekki til á lager og þarf að smíða hana höfum við samband og látum vita af áætluðum afhendingartíma.
Athugið að á álagstímum líkt og afsláttardögum getur afhendingartíminn vera lengri.
Hvaða sendingarmöguleikar eru í boði?
Þú getur sótt pöntun í verslun BY-L á opnunartíma eða fengið hana senda með Póstinum eða Dropp. Einnig er hægt að velja heimsendingu þar sem hún er í boði.
Hvað kostar sending?
Frí sending er á næsta afhendingarstað þegar verslað er fyrir 25.000 kr. eða meira. Annars kostar sending 890 kr á næsta afhendingarstað Póstsins eða Dropp. Heimsending með Póstinum eða Dropp kostar 1.200 kr.
Get ég sótt pöntunina mína í verslun?
Já. Þú getur valið að sækja pöntunina í verslun BY•L og fengið hana afhenta þar á opnunartíma þegar hún er tilbúin.
Hvað gerist ef varan sem ég panta er ekki til á lager?
Ef vara er ekki til á lager og þarf að smíða hana höfum við samband við þig og látum vita af áætluðum afhendingartíma. Ef þú vilt ekki bíða eftir vörunni er hægt að óska eftir endurgreiðslu.
Hvað er langur skiptifrestur?
Almennt er 14 daga skiptifrestur frá því að pöntunin er tekin saman. Varan þarf að vera ónotuð, í góðu lagi og í upprunalegum umbúðum eða öskju. Kvittun eða skiptimiði þarf að fylgja þegar vöru er skipt.
Ég er að kaupa gjöf sem verður gefin síðar, byrjar skiptifresturinn strax?
Ekki endilega. Ef gjöfin verður afhent síðar getur þú skrifað dagsetninguna sem gjöfin verður gefin í athugasemd við pöntunina í körfunni. Þá tryggjum við að viðtakandinn hafi 14 daga til að skipta vörunni frá þeim degi.
Er hægt að skipta áletruðum eða sérsniðnum skartgripum?
Ekki er hægt að skipta eða skila áletruðum skartgripum. Ef þú ert að panta áletrun í gjöf er því mikilvægt að ganga úr skugga um rétar upplýsingar áður en pöntunin er staðfest.
Hver borgar sendingarkostnað ef ég vil skipta vöru?
Viðskiptavinur greiðir sendingarkostnað vegna venjulegra skipta. Ef eitthvað er að vörunni, til dæmis galli eða annað sem á ekki að gerast, greiðir BY•L sendingarkostnaðinn.
STÆRÐIR & LENGDIR
Hvernig finn ég rétta hringastærð?
Ef þú ert ekki viss um hringastærð getur þú skoðað Hringastærðir þar sem við förum yfir hvernig þú finnur rétta stærð. Einnig er hægt að koma til okkar í verslun BY•L í Silfursmára 8 og fá aðstoð við að mæla hringastærðina.
Er hægt að stækka eða minnka hring frá BY•L ?
Já. Ein stækkun eða minnkun fylgir með þegar þú kaupir hring frá BY•L, svo lengi sem komið er með hringinn innan mánaðar frá afhendingu. Þetta er sérstaklega hentugt þegar hringur er keyptur í gjöf eða þegar þú ert ekki alveg viss um stærð við pöntun á netinu.
Eftir þann tíma, eða ef þörf er á frekari breytingum, er hægt að láta breyta stærð gegn vægu gjaldi.
Hvað eru hálsmenin frá BY•L löng?
Langflest hálsmen BY•L eru stillanleg og eru um 42–47 cm að lengd. Lengd getur þó verið mismunandi eftir hönnun og því er gott að skoða upplýsingar við viðkomandi vöru.
Er hægt að stytta eða lengja hálsmen?
Já, í mörgum tilfellum. Gullsmíðaverkstæði BY•L getur meðal annars stytt stillanlega keðju eða bætt við hana ef þörf er á. Þú getur líka komið með hálsmenið eftir kaup ef þú kemst að því að önnur lengd hentar þér betur.
Hvað eru armböndin frá BY•L löng?
Langflest armbönd BY•L eru stillanleg, yfirleitt á bilinu 16–23 cm. Einstakar gerðir geta þó verið öðruvísi og því er gott að skoða upplýsingar við vöruna.
Er hægt að stytta eða lengja armband?
Já, í mörgum tilfellum. Gullsmíðaverkstæðið okkar getur stytt stillanlega keðju eða bætt við hana ef þörf er á. Það er líka hægt að koma með armbandið eftir kaup ef þú sérð þá að þú þarft aðra lengd.
Hvað ef ég veit ekki stærðina þegar ég kaupi skartgrip í gjöf?
Það þarf ekki alltaf að vita nákvæma stærð. Langflest hálsmen og armbönd BY•L eru stillanleg og með hringum fylgir ein stærðarbreyting innan mánaðar frá afhendingu. Með öllum kaupum fylgir einnig skiptimiði, þannig að viðtakandinn getur skipt gjöfinni ef hún hentar ekki.
EFNIVIÐUR & SKARTGRIPIR
Úr hvaða efnivið eru skartgripir BY•L ?
Skartgripir BY•L eru aðeins smíðaðir úr eðalmálmum, það eru 925 sterling silfri, gylltu silfri, 14kt gulli og 14kt hvítagulli. Í skartgripunum eru einnig notaðir demantar, perlur og ýmsir eðalsteinar. Efni og steinar eru alltaf tilgreind í upplýsingum við hverja vöru.
Hver er munurinn á silfri og gylltu silfri?
Bæði eru úr 925 sterling silfri í grunninn. Silfurlituðu skartgripirnir eru með rhodium húð sem gefur þeim fallega áferð og hjálpar til við að verja silfrið. Gylltu skartgripirnir eru húðaðir með 18kt gulli og fá þannig gullitað yfirbragð.
Hver er munurinn á gylltu silfri og 14kt gulli?
Gylltur skartgripur er úr 925 sterling silfri sem hefur verið húðað með 18kt gulli. Með tímanum getur gyllingin því slitnað, sérstaklega á skartgripum sem verða fyrir miklu núningi eins og hringum.
Skartgripur úr 14kt gulli er hins vegar úr gullblöndu í gegn og gullliturinn slitnar því ekki af. Gull getur þó rispast og sýnt merki um notkun eins og aðrir eðalmálmar.
Hvað er hvítagull?
Hvítagull er gullblanda með ljósari lit en hefðbundið gult gull. Hjá BY•L eru skartgripir úr hvítagulli almennt úr 14kt hvítagulli þó við sérsmíðum úr 18kt gulli eða hvítagulli sé þess óskað.
Eru skartgripir BY•L úr ekta silfri og gulli?
Já, við notum eingöngu eðalmálma. Silfurskartgripir BY•L eru úr 925 sterling silfri og gullskartgripir úr 14kt gulli eða 14kt hvítagulli. Gylltir skartgripir eru úr 925 sterling silfri með 18kt gullhúð.
Eru demantarnir í skartgripum BY•L ekta demantar?
Já. Í skartgripum BY•L eru að langmestu notaðir náttúrulegir demantar og gæði demantanna eru tilgreind í vörulýsingu. Demantaskírteini fylgir skartgripum með demöntum og skírteini fyrir eðalsteina fylgir þegar þeir eru hluti af skartgripnum.
Í þeim vörum þar sem notaðir eru LAB-demantar (laboratory-grown diamonds) kemur það skýrt fram bæði í vöruheiti og vörulýsingu.
Hvað þýðir karat (kt) í gulli?
Karat segir til um hlutfall gulls í gullblöndu. 14kt gull inniheldur 58,5% hreint gull, en aðrir málmar eru hluti af blöndunni til að gefa gullinu eiginleika sem henta vel í skartgripi.
Hvernig eru gæði demanta metin?
Gæði demanta eru almennt metin út frá svokölluðum 4C: lit (Color), slípun (Cut), karatþyngd (Carat) og hreinleika (Clarity).
Litur segir til um hversu litlaus demanturinn er, hreinleiki um innri og ytri einkenni steinsins, karat um þyngd hans og slípun hefur mikil áhrif á hvernig demanturinn endurkastar ljósi og þar með ljóma hans.
Gæði demanta í skartgripum BY•L eru tilgreind í vörulýsingu eftir því sem við á. Demantaskírteini fylgir skartgripum með demöntum og ef um demant með vottun frá óháðri stofnun er að ræða koma þær upplýsingar einnig fram.
Viltu vita meira um gæði demanta? Lestu leiðbeiningar okkar um demanta og 4C.
UMHIRÐA SKARTGRIPA
Hvernig hugsa ég best um skartgripina mína?
Við mælum með að taka skartgripi af fyrir svefn, sund, rækt, sturtu og aðra notkun þar sem þeir geta orðið fyrir miklu álagi, raka eða núningi. Geymdu skartgripina helst í skartgripaboxi eða lokuðu boxi þegar þeir eru ekki í notkun. Með góðri umhirðu getur skartgripurinn haldist fallegur mun lengur.
Má ég fara í sturtu eða sund með skartgripi?
Við mælum almennt með að taka skartgripi af fyrir sturtu og sund. Þetta á sérstaklega við um skartgripi úr silfri og gylltu silfri. Skartgripir úr 14kt gulli og hvítagulli þola vatn betur, en sápa, klór og önnur efni geta safnast á yfirborðið og dregið úr gljáa.
Hvernig hugsa ég um gyllta skartgripi?
Gylltir skartgripir BY•L eru úr silfri með 18kt gyllingu. Gyllingin er húð á yfirborði skartgripsins og eyðist því smám saman við notkun. Hversu hratt það gerist fer meðal annars eftir núningi, raka, notkun og sýrustigi húðarinnar. Taktu gyllta skartgripi af fyrir svefn, sturtu, sund og rækt til að lengja endingu gyllingarinnar.
Er hægt að gylla skartgrip aftur?
Já. Þar sem skartgripirnir eru úr eðalmálmi er hægt að endurgylla þá þegar gyllingin hefur slitnað. Gullsmíðaverkstæði BY•L býður upp á endurhúðun og yfirferð skartgripa.
Hvernig hugsa ég um hring úr gylltu silfri?
Hringar verða fyrir meiri núningi og álagi en margir aðrir skartgripir og því getur gylling á þeim slitnað hraðar. Við mælum sérstaklega með að taka gyllta hringi af fyrir handþvott, rækt, sturtu og aðra notkun þar sem þeir verða fyrir miklum núningi eða raka. Hægt er að endurgylla hringinn þegar þörf er á.
Hvernig hugsa ég um skartgripi úr 14kt gulli og hvítagulli?
Skartgripir úr 14kt gulli og hvítagulli mega fara með í sund og sturtu án þess að eðalmálmurinn láti mikið á sjá. Með tímanum geta þeir þó rispast eða misst hluta af gljáanum við daglega notkun. Einnig geta sápa, krem og önnur efni safnast á yfirborðið. Gullsmíðaverkstæði BY•L getur hreinsað, pússað og yfirfarið skartgripinn svo hann verði fallegur á ný.
Hvernig hugsa ég um perlur og eðalsteina?
Perlur og mismunandi eðalsteinar geta verið viðkvæmari fyrir efnum en gull og silfur. Við mælum með að setja ilmvatn og hárlakk á áður en skartgripur með perlum eða eðalsteinum er settur á. Ef þú ert óviss um umhirðu ákveðins steins getur starfsfólk BY•L ráðlagt þér.
Hvernig hreinsa ég skartgripina mína?
Mismunandi skartgripir geta þurft mismunandi hreinsun eftir efniviði, húðun og steinum. BY•L býður upp á hreinsivörur fyrir skartgripi og einnig er hægt að koma með skartgripi á verkstæðið okkar í Silfursmára til hreinsunar og yfirferðar.
GJAFIR
Er gjafainnpökkun í boði?
Já. Við bjóðum upp á fría gjafainnpökkun á skartgripum frá BY•L. Skartgripnum er pakkað fallega inn og hann er tilbúinn til gjafar.
Get ég keypt gjafabréf hjá BY•L?
Já. Gjafabréf BY•L gilda bæði í vefversluninni og í verslun okkar í Silfursmára 8.
Gjafabréfið er sent rafrænt í tölvupósti, en þú getur einnig valið að fá áþreifanlegt gjafakort í gjafapakkningu. Ef gjafabréfið er gjöf geturðu látið senda það rafrænt beint til viðtakandans, skrifað persónuleg skilaboð og valið dagsetninguna sem gjafabréfið á að berast.
Ef þú finnur ekki þá upphæð sem þú vilt geturðu haft samband við okkur og við útbúum gjafabréf fyrir þá upphæð.
Hvað ef ég veit ekki hvaða skartgrip ég á að velja í gjöf?
Ef þú ert óviss geturðu skoðað Gjafahugmyndir BY•L, þar sem hægt er að finna gjafir eftir verði, stíl, tilefni og eftir því fyrir hvern þú ert að velja. Hálsmen og eyrnalokkar eru oft sniðugur kostur þegar þú þekkir ekki nákvæma hringastærð viðtakandans.
Hvernig vel ég rétta stærð þegar ég kaupi skartgrip í gjöf?
Langflest armbönd BY-L eru stillanleg og mörg hálsmen eru einnig með stillanlegri lengd. Ef þú ert að kaupa hring og veist ekki stærðina geturðu skoðað leiðbeiningar um hringastærðir. Ef stærðin reynist ekki rétt þá fylgir ein stærðarbreyting með hjá gullsmíðaverkstæði BY•L.
Get ég látið senda gjöfina beint til viðtakandans?
á. Þú getur valið afhendingarmáta í greiðsluferlinu og látið senda pöntunina á heimilisfang viðtakandans. Ef gjöfin á að vera afhent síðar geturðu skrifað dagsetninguna sem hún verður gefin í athugasemd við pöntunina. Þá miðast 14 daga skiptifrestur við þann dag.
Get ég gert gjöfina persónulegri?
Já. við bjóðum meðal annars upp á stafi, mánaðarblóm og áletranir á valda skartgripi. Gullsmíðaverkstæðið okkar getur einnig aðstoðað við sérsmíði ef þú ert með ákveðna hugmynd.
Hvað er góð gjöf fyrir stærri tímamót?
Fyrir brúðkaupsafmæli, morgungjöf og önnur stór tímamót eru skartgripir úr 14kt gulli eða hvítagulli, með eða án demanta og eðalsteina, vinsæll kostur. Á Gjafahugmyndasíðunni okkar finnur þú sérstakar hugmyndir fyrir stærri tilefni.
GULLSMÍÐAVERKSTÆÐI & ÞJÓNUSTA
Hvaða þjónustu býður gullsmíðaverkstæði BY•L upp á?
Á gullsmíðaverkstæði BY•L í Silfursmára 8 sinnum við meðal annars viðgerðum, stærðarbreytingum á hringum, steinaísetningum, endurhúðun og yfirferð skartgripa. Við tökum einnig að okkur sérsmíði og endursmíði úr gömlu gulli.
Gerið þið við skartgripi sem eru ekki frá BY•L?
Já. Verkstæðið okkar þjónustar ekki eingöngu skartgripi frá BY•L. Þú getur komið með skartgripi úr eðalmálmum til okkar og gullsmiðirnir okkar meta hvað hægt er að gera og ráðleggja um næstu skref.
Getið þið stækkað eða minnkað hring?
Já, í mörgum tilfellum er hægt að stækka eða minnka hring. Hversu mikið er hægt að breyta stærðinni fer meðal annars eftir hönnun hringsins, efniviði og steinaísetningu. Gullsmíðir okkar geta metið hringinn og ráðlagt hvað hentar best.
Getið þið lagað slitinn eða skemmdan skartgrip?
Já. Við sinnum ýmiss konar viðgerðum á skartgripum, til dæmis þegar keðja slitnar, festing bilar eða skartgripur þarfnast yfirferðar. Best er að koma með gripinn á verkstæðið svo gullsmiður geti skoðað hann og metið hvað þarf að gera.
Er hægt að endurgylla skartgripi?
Já. Gylltir silfurskartgripir eru með gullhúð sem slitnar smám saman við notkun. Hægt er að endurgylla skartgripi úr eðalmálmi og færa þeim þannig fallegt yfirbragð á ný. Hversu oft þörf er á endurgyllingu fer eftir gripnum og notkun hans.
Getið þið notað gamalt gull í nýjan skartgrip?
Já. Við getum í mörgum tilfellum nýtt gamalt gull og jafnvel steina úr eldri skartgripum við gerð nýs grips. Gullið er þá metið og farið yfir möguleikana með þér áður en vinna hefst.
SKOÐA BETUR
Getið þið sérsmíðað skartgrip eftir minni hugmynd?
Já. Gullsmíðaverkstæði BY•L tekur að sér sérsmíði og getur unnið með þér út frá hugmynd, tilefni eða ákveðinni útfærslu. Ferlið og möguleikarnir ráðast af verkefninu og því er best að bóka ráðgjöf til að fara yfir hugmyndina með gullsmiði.
BÓKA RÁÐGJÖF
Hvenær þarf ég að bóka tíma hjá gullsmiði?
Fyrir einfaldari fyrirspurnir eða þegar þú vilt koma með skartgrip til skoðunar geturðu komið við hjá okkur í Silfursmára 8. Ef um sérsmíði, endursmíði eða verkefni sem þarfnast ítarlegri ráðgjafar er að ræða er gott að bóka tíma hjá gullsmiði.
Hvað kostar viðgerð eða breyting á skartgrip?
Verðið fer eftir því hvað þarf að gera, efniviði gripsins og umfangi vinnunnar. Oft þarf gullsmiður að skoða skartgripinn áður en hægt er að gefa nákvæmt verð. Komdu með gripinn á verkstæðið og við förum yfir möguleikana með þér.
FANNSTU EKKI SVARIÐ?
Við aðstoðum þig með spurningar um skartgripi, pantanir og þjónustu.
