VERKSTÆÐISÞJÓNUSTAN

GULLSMÍÐAVERKSTÆÐIÐ

Í Silfursmára 8, á bakvið verslunina okkar er gullsmíðaverkstæði ásamt þremur gullsmiðum sem hafa áratugareynslu í faginu. 

Gullsmiðirnir okkar eru Lovísa Olesen, Lena Rut Kristjánsdóttir og Páll Sveinsson.

Á gullsmíðaverkstæðinu okkar fer öll vinnan fram undir einu þaki. Við sinnum sérsmíði, viðgerðum, breytingum, steinaísetningum, handgreftri, steypuvinnu, endursmíði og hönnun skartgripa – með áherslu á gæði, nákvæmni og handverk.

Athugið að við þjónustum alla skartgripi, ekki einungis skartgripina okkar heldur alla skartgripi úr eðalmálmum.

SÉRSMÍÐI & HÖNNUN

Fyrsta skrefið er að bóka tíma hjá gullsmiði til þess að ræða hugmyndir og óskir.

Við hönnum og smíðum skartgripi frá grunni eftir óskum viðskiptavina. Ferlið getur hafist á hugmynd, teikningu eða fyrirmynd.

Sérsmíði á við um nýsmíði skartgripa og endursmíði eldri gripa. Hægt er að nýta eldri skartgripi sem efnivið í nýjan.  Það eru nefnilega ansi margir sem eiga bæði gull og silfur ofan í skúffu. Auðvelt er að bræða upp eða jafnvel breyta lítillega, gamalt gull og demantar öðlast því í raun nýtt líf.

Það er í raun allt í boði og okkur finnst einstaklega skemmtilegt að taka þátt í hvers konar sérsmíði og hönnun með viðskiptavinum okkar.

STÆRÐARBREYTING HRINGA

Þegar keyptur er hringur frá okkur þá er ein stærðarbreyting innifalin á hringnum (Einum mánuði frá kaupum). Ef þarf að stækka eða minnka hringinn aftur þá er gjald tekið fyrir, upphæð fer eftir umfangi. Við tökum að okkur að stærðarbreyta öllum hringum úr eðalmálmum hvort sem þeir eru frá okkur eða öðrum.

HREINSUN SKARTGRIPA

Við seljum hreinsiefni og klúta til þess að þú getir hreinsað skartgripinn þinn heima.  
Stundum þurfa skartgripir extra ást, þá er gott að koma með þá til okkar. Við tökum þá skartgripinn inn á verkstæðið okkar og förum vel yfir hann með okkar bestu tækjum. Kostnaður fer eftir umfangi verkefnisins en er ákvarðaður fyririfram.

 Nauðsynlegt er að viðhalda skartgripum til þess að þeir haldi sér vel - bæði varðandi áferð þeirra og ásýnd. Óhreinindi og rispur myndast auðveldlega við hversdagslega notkun, sem er eðlilegt.

ÁSTANDSSKOÐUN SKARTGRIPA

Við yfirförum skartgripi með tilliti til gæða, öryggis og ástands. Gullsmiðir okkar fara vel yfir ástand steinafestinga, læsinga, samskeyta og slitfletir yfirfarnir. Við veitum ráðgjöf um nauðsynlegar viðgerðir eða fyrirbyggjandi aðgerðir. Á verkstæðinu okkar vinna gullsmiðir sem hafa áralanga reynslu í ástandsskoðun og viðgerðum skartgripa.

VIÐGERÐ EÐA ENDURSMÍÐI

Við gerum við alla skartgripi hvort sem þeir eru frá okkur eða öðrum svo lengi sem þeir eru úr eðalmálmum (Stál er ekki eðalmálmur).

Við gerum við skartgripi sem hafa skemmst eða slitnað með tímanum. Þar má nefna brotnar eða slitnar keðjur, lausar festingar, slitnar læsingar, ef steinar detta úr en hér má lengi telja.  

Við vinnum allar viðgerðir af metnaði og í góðu sambandi við viðskiptavininn um hvað best sé að gera. Oft eru fleiri en ein leið í boði og mikilvægt er að upplýsa viðskiptavininn vel.

Viðgerðir eru af ýmsum toga og er því tími og kostnaður mjög mismunandi eftir verkefnum. Við upplýsum alltaf viðskiptavini um verklýsingu og kostnað áður en hafist er handa.

GYLLINGAR & RHODIUMHÚÐUN

Rhodiumhúð er rafhúð sem er á silfri og  hvítagulli - rhodiumhúðin er slitsterk en ekki eilíf og sama er með gyllinguna. Gyllingin er vissulega 18kt gull, þykk og fín en ekki gull í gegn.  Gylling gerir kleift að kaupa skartgripi með fallegum gulllit á lægra verði en gull.  Skartgripi úr eðalmálmum er hægt að endurgylla (Gildir ekki um stálskartgripi).

Á verkstæðinu okkar erum við með fullkomin rafhúðunartæki og sinnum við öllum skartgripum.

STEINAÍSETNINGAR

Við setjum öll form demanta, eðalsteina og aðrar gerðir steina í skartgripi. Hægt er að koma með stein/demant eða kaupa hann hjá okkur. Einnig sinnum við viðgerðum á skartgripum þar sem steinar hafa dottið úr vegna þess að festingarnar eru eyddar eða hafa orðið fyrir höggi eða öðru hnjaski.   

ENDURGERÐ EÐA HÖNNUN SKARTGRIPA

Við endurgerum eldri skartgripi. Algengt er að fólk erfi skartgrip og vill gera hann sem nýjan eða bæta hann á einhvern hátt.  Sem dæmi getur hring verið umbreytt í hálsmen eða endurhanna má skartgripinn alveg uppá nýtt. Gamalt gull og steinar geta þannig fengið nýtt líf í nútímalegri eða persónulegri útfærslu.

VIÐ KAUPUM GULL

Verkstæðið okkar kaupir gull.  Uunnið er eftir skýrum verkferlum og í góðu sambandi við viðskiptavininn. Gullið er alltaf tekið inn í mat sem getur tekið nokkra daga.  Viðskiptin fara ekki fram samdægurs.