Stefna & ábyrgð í rekstri
Hjá BY•L leggjum við áherslu á vandaða íslenska hönnun, ábyrgan rekstur og smíði á vönduðum skartgripum. Við viljum reka fyrirtækið af fagmennsku og virðingu fyrir starfsfólki, viðskiptavinum, samstarfsaðilum og umhverfinu.
Við erum lítið íslenskt fyrirtæki og leggjum áherslu á að stefnum okkar og verklagi sé hagað í samræmi við stærð og eðli starfseminnar.
Fólkið okkar
Við leggjum áherslu á öruggt, heilbrigt og jákvætt starfsumhverfi þar sem starfsfólk nýtur virðingar og er ánægt í sínu starfi.
BY•L starfar í samræmi við gildandi vinnulöggjöf og viðeigandi kjarasamninga. Við leggjum jafnframt áherslu á jafnrétti, jafna möguleika, gott samstarf og vinnuumhverfi þar sem einelti, áreitni, mismunun og ofbeldi eru ekki liðin.
Mannréttindi og jafnrétti
Við virðum alþjóðlega viðurkennd mannréttindi og gerir sömu kröfu til þeirra samstarfsaðila og birgja sem við eigum viðskipti við.
Við mismunum ekki á grundvelli kyns, kynvitundar, aldurs, uppruna, trúar, fötlunar, kynhneigðar eða annarra persónulegra þátta.
Ábyrg hráefni og birgjar
Skartgripir BY•L eru framleiddir úr verðmætum hráefnum og því skiptir uppruni þeirra miklu máli.
Við veljum birgja með áherslu á ábyrgan uppruna, rekjanleika og viðeigandi vottanir eða staðfestingar þar sem við á. Við gerum kröfu um að birgjar starfi í samræmi við gildandi lög og virði mannréttindi, vinnuréttindi og góða viðskiptahætti.
Demantar og náttúrusteinar okkar eru með upprunavottorð og eðalmálmar í alla okkar skartgripi eru frá viðurkenndum framleiðendum.
Langur líftími skartgripa
Við teljum að ein mikilvægasta leiðin til að draga úr umhverfisáhrifum sé að skartgripir okkar endist sem lengst. Við leggjum því mikla áherslu á vandaða framleiðslu og fræðum viðskiptavini um rétta umhirðu skartgripa.
BY•L rekur fullbúið gullsmíðaverkstæði þar sem við viðhöldum, endurnýjum og breytum skartgripum, hvort sem þeir voru upphaflega keyptir hjá okkur eða annars staðar. Einnig leggjum við áherslu á að nýta eldri skartgripi og verðmæta málma við smíði nýrra gripa.
Umbúðir og endurnýting
Við leitumst við að velja umbúðir með endurnýtingu og endurvinnslu að leiðarljósi.
Sendingarpokar okkar eru endurvinnanlegir og skartgripaöskjur BY•L eru hannaðar til langtímanotkunar, meðal annars til að geyma og vernda skartgripi. Við tökum einnig við vel með förnum eða ónotuðum BY•L öskjum aftur þegar viðskiptavinir eða samstarfsaðilar hafa ekki frekari not fyrir þær en þá má nýta þær aftur.
Umhverfi
BY•L leitast við að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar eftir því sem kostur er. Við leggjum meðal annars áherslu á:
- ábyrga nýtingu hráefna og umbúða
- endurnotkun og endurvinnslu
- viðgerðir og endursmíði
- langan líftíma skartgripa
- val birgja með tilliti til ábyrgðar og uppruna hráefna
- jákvæða þróun umhverfisáhrifa starfseminnar til að bæta verklag eftir því sem fyrirtækið breytist og stækkar
Viðskiptasiðferði
BY•L leggur áherslu á heiðarleika, fagmennsku og gagnsæi í viðskiptum og væntum sambærilegra vinnubragða af birgjum okkar og samstarfsaðilum.
Viðurkenningar/vottanir
BY•L hefur hlotið viðurkenningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árin 2025 og 2026.
Við lítum á þá viðurkenningu sem staðfestingu á því að traustur og ábyrgur rekstur sé mikilvægur hluti af því hvernig við byggjum fyrirtækið til framtíðar.
Fyrir frekari upplýsingar um ábyrgð og stefnu BY•L má hafa samband við okkur á byl@byl.is
