Sendingar, afhending og skiptifrestur hjá BY•L
Við hjá BY•L leggjum áherslu á skjóta og persónulega þjónustu. Við erum með opið alla daga nema sunnudaga og tökum yfirleitt saman pantanir strax eftir að þær berast. Flestar pantanir eru tilbúnar til afhendingar innan 24 klukkustunda og oft mun fyrr. Afhendingartími fer þó eftir því hvenær dags pöntunin er gerð og hvort verslunin sé opin.
Sé varan ekki til á lager, það á eftir að smíða hana, verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd ef þess er óskað.
Við bjóðum upp á nokkra afhendingarmöguleika:
- Sækja í verslun á opnunartíma
- Sendingu með Póstinum
- Sendingu með Dropp
Við sendum frítt á næsta afhendingarstað Póstsins eða Dropp þegar verslað er fyrir 25.000 kr eða meira.
Annars er sendingarkostnaður 890 kr.
Heimsending með Póstinum eða Dropp kostar alltaf 1200 kr.
Pantanir sem eru sendar með Íslandspósti og Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts sem og Dropp og um afhendingu vörunnar. Kostnaður við hverja sendingu er tilgreindur við pöntun. BY•L ber enga ábyrgð á því tjóni sem kann að verða í flutningi.
Skiptifrestur:
Allar pantanir eru merktar með dagsetningu þegar þær eru teknar saman og almennt er 14 daga skiptifrestur frá þeirri dagsetningu að því tilskildu að varan sé ónotuð, henni skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum/öskju. Ekki er hægt að skipta vöru ef búið er að rjúfa innsigli á pakkningu eigi það við. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila. Skila verður inn kvittun fyrir vörukaupum þegar vöru er skipt eða að varan sé með skiptimiða.
Ef þú ert að kaupa gjöf sem verður afhent síðar er hægt að skilja eftir athugasemd við pöntunina í körfunni með dagsetningunni sem gjöfin verður gefin. Þá tryggjum við að viðtakandi hafi 14 daga til að skipta vörunni frá þeim degi.
Við greiðum ekki sendingarkostnað vegna skipta, en ef eitthvað kemur upp á - til dæmis galli eða annað sem á ekki að gerast, greiðum við undir sendinguna.
Ef spurningar vakna eða eitthvað er ekki eins og það á að vera hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband við okkur á: lovisa@byl.is
Einnig er alltaf hægt að senda okkur skilaboð á samfélagsmiðla BY•L.
