Tails demantshringur - Margir demantar
Vörulýsing
Tails hringur með mörgum demöntum í gullkúlunum sem mynda bauginn. Þessi kemur í nokkrum útfærslum; þar sem allir demantar eru jafnstórir eða með stærri demanti fyrir miðju - auk þess sem litaðir demantar eru í boði.
▪ Hringurinn er smíðaður úr 14kt gulli og hvítagulli
▪ Val um stærð á demöntum
- Einn .15ct demantur fyrir miðju og 8 minni demantar, stærð samtals= .23ct
- Einn .10ct demantur fyrir miðju og 8 minni demantar, stærð samtals= .18ct
- Einn .05ct demantur fyrir miðju og 8 minni demantar, stærð samtals= .13ct
- Tíu .01ct demantar, stærð samtals= .10ct
- Hvítir demantar eru í gæðum TW vs1
Settu í textaboxið hvernig þú vilt hafa demantana á litinn:
Litir á demöntum:
Hvítir, bleikir, grænir, bláir, appelsínugulir, sægrænir (eins og á mynd með .15ct fyrir miðju), gulir, brúnir, svartir. Ekki hika við að hafa samband ef þú ert óviss með litina.
▪Við notum náttúrulega demanta í okkar skartgripi
▪ Breidd á hring: 3mm
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Usually ready in 24 hours
Hringurinn er smíðaður í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir
- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá aðra stærð/veit ekki stærðina en stærðarbreyting á hringnum fylgir með.
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 14kt gulli eða hvítagulli með náttúrulegum demanti.
Allir okkar demantar eru í gæðum TW-VS1 nema annað sé tekið fram í vörulýsingu. Demantarnir okkar eru frá birgjum með alþjóðlega vottun – Conflict free. Öll demantaísetning fer fram hér.
Náttúrulegir demantar eru einstakir, engir tveir eru eins.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.
Pantanir yfir 25.000 kr:
Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.
Pantanir undir 25.000 kr:
Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.
Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.










