Stormur Signet hálsmen
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Usually ready in 24 hours
Vörulýsing
Stormur Signet er gróf round plata með sléttari fleti í miðjunni sem nýtur sín vel með eða án áletrunar.
▪Hálsmenið er úr silfri
▪ Hægt er að velja um oxiderað með mattri áferð eða með rhodium húðun, gróf en glansandi áferð.
▪Hálsmenið er handsmíðað á veglegri 50cm Foxtail keðju sem er stillanleg í 60cm.
▪Val er um stóra eða litla plötu
▪ Val er um með eða án áletrunar
- Hægt er að setja 1-2 stafi á minni plötuna og 1-3 stafi á stærri.
▪Afgreiðslutími á menum með áletrun getur tekið allt að einni viku.
▪Skartgripirnir í Stormi eru handsmíðaðir á verkstæðinu okkar í Silfursmára.
▪ Sé skartgripurinn ekki til á lager, getur því afgreiðslutími verið allt frá tveimur dögum upp í eina viku.
Stormur er fyrsta herralínan okkar, hún er kraftmikil eins og nafnið gefur til kynna. Skartgripirnir í línunni eru fáanlegir með mattri /ox og glansandi/rhodium áferð - einnig er hluti línunnar fáanlegur í 14kt gulli.
Skargripirnir eru karlmannlegir, áferðin á hráefninu er gróf en um leið mild út af dökku burstuðu áferðinni í bland við háglansandi fleti.
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri. Fæst með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það. Einnig með burstaðri áferð eða oxideringu sem gefur matta áferð.
Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.










