Stilla hálsfesti + eyrnalokkar + hringur / Silfur

Verð kr52,100
🎁 Viltu að við pökkum inn fyrir þig? Skildu þá eftir athugasemd í körfunni.

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst

Settið inniheldur þrjá skartgripi úr Stillu, hálsfesti með 7x dropum, hring og studs dropa eyrnalokka. Mjúka afslappaða form dropans er einkenni línunnar Stillu. 

Stillu hringurinn kemur í einni sígildri útfærslu í háglans.  Hann er mjög þægilegur að bera og stillanlegur í margar stærðir.

▪ Hringurinn er úr 925 sterling silfur

▪ Hringurinn er opinn og afar þæginlegur

▪ Hringurinn er einnig fáanlegur gylltur (með 18kt gyllingu)

 

Veglegir dropastud eyrnalokkar

▪ Lokkarnir er úr 925 sterling silfur

▪ Dropinn er 16mm langur og 11mm þar sem hann er breiðastur

▪ Lokkarnir eru einnig fáanlegir gylltir (með 18kt gyllingu)

 

Einstaklega fínleg hálsfesti með 7x háglans dropum.  

▪ Hálsfestin er úr 925 sterling silfri

▪ 7 stk silfurdropar á keðjunni

▪ Stærð dropa: 8mm

▪ Keðjan er stillanlegt frá 45-50cm

▪ Hálsfestin er einnig fáanleg gyllt (með 18kt gyllingu)

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri. Fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt. Með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að skilja eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar - einnig ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, láttu okkur vita á sama stað.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.