Spine hálskeðja
Vörulýsing
Spine keðjan kemur í tveimur útfærslum!
Spine FLAT er klassísk og líkist hrygg eins og nafnið gefur til kynna. Keðjan er flöt og áferðin slétt með skemmtilegum "details".
Spine með FLÉTTU líkist Spine flat keðjunni en er með fléttu í miðjunni. Keðjan er flöt og áferðin slétt uppfull af "details".
▪ Spine keðjan er úr silfri, kemur í armbandi og hálsfesti
▪ Fæst oxideruð með mattri áferð og með rhodium húðun (silfurlituð)
▪ Hálsfestin er 50 cm en stillanleg, heildarlengd 60cm.
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst
Stormur er fyrsta herralínan okkar, hún er kraftmikil eins og nafnið gefur til kynna. Skartgripirnir í línunni eru fáanlegir með mattri /ox og glansandi/rhodium áferð - einnig er hluti línunnar fáanlegur í 14kt gulli.
Skartgripirnir eru karlmannlegir, áferðin á hráefninu er gróf en um leið mild út af dökku burstuðu áferðinni í bland við háglansandi fleti.
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri. Fæst með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það. Einnig með burstaðri áferð eða oxideringu sem gefur matta áferð.
Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.
Pantanir yfir 25.000 kr:
Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.
Pantanir undir 25.000 kr:
Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.
Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.





