Örk stud eyrnalokkar með perlu

Verð kr17,700

Perlur
Stærð: Litlir
Litur: Gylltir
Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörunúmer: 30-009
Vörulýsing

Þessir litlu fallegu lokkar í Örk línunni okkar eru elegant og töff!  Þeir eru þæginlegir og liggja vel við eyrað.

▪ Eyrnalokkarnir er úr silfri

▪ Fást með 18kt gyllingu og rhodium húðun (silfurlitaðir)

▪ Lokkarnir koma litlir með 1x perlu, litlir með 2x perlum og stórir með 1x perlu

▪Hægri og vinstri lokkurinn eru ekki eins, annars vegar er ekki sama lögun á vinstri og hægri lokk, en lokkarnir með 1x perlu eru þá líka aðeins með perlu í öðrum lokknum. 

Línan er fjölbreytt hrá, töff og elegant allt í bland! Formin og áferðin eru skemmtileg og blandast fallega saman og mynda heild. Sjón er sögu ríkari.

Örk er einnig fáanleg í gulli og hvítagulli

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri. Fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt. Með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.