Örk hálsmen + Fossflétta gróf hálsfesti - gyllt
Gat ekki hlaðið afhendingarstað
Vörulýsing
Þessi samsetning er tryllt! Gróf Fossflétta og Örk hálsmen með 3x einingum!
Grófa Fossfléttan er ný útgáfa af vinsælu sléttu Fossfléttunni okkar. Fléttan er með demantsskurði sem gefur festinni fallegan glans en yfirbragðið er allt grófara. Örk línan er fjölbreytt - hrá, töff og elegant allt í bland! Formin og áferðin eru skemmtileg og blandast fallega saman og mynda heild. Sjón er sögu ríkari.
Fossflétta gróf:
▪ 925 silfur með 18kt gyllingu
▪ Hálsfestin er stillanleg frá 40-50cm.
▪ Fossflétta gróf er 4mm breið.
▪ Festin er fáanleg rhodium, svört rhodium & gyllt.
Örk hálsfesti:
▪1x einingar hanga á fallegu Örk keðjunni.
▪Keðjan er stillanlegt frá 45-50cm.
▪Hásmenin eru fáanleg gyllt, rhodium og blönduð.
▪Örk línan er handsmíðuð á verkstæðinu okkar í Silfursmára.
Efniviður
Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli.
Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.