Örk hálsfestar + mjó Fiskiflétta - gyllt

kr66,600
Frá BY•L

Vörulýsing

Í þessu veglega setti eru tvær hálsfestar úr Örk línunni, önnur er fínleg Örk keðja og hin er með 5 einingum á keðjunni og með þessu setjum við svo mjóa Fiskifléttu! Þú sérð á mynd af módeli hvernig þessi samsetning kemur út, við elskum hana! 

Mjó Fiskiflétta: 

▪ Festin er stillanleg frá 40-50cm.

▪ Festin er 6mm að breidd.

▪ Fiskiflétta er fáanleg rhodium, svört rhodium & með 18kt gyllingu.

 

Örk, fínleg keðja: 

▪Örk hálsfestin er með einstaklega fallegu mynstri.

Festin er fínleg en um leið gróf.

▪Festin er stillanlegt frá 40-50cm.

▪Örk er fáanleg rhodium og gyllt.

 

Örk með 5x einingum: 

▪5x einingar hanga á fallegu Örk keðjunni.

▪Keðjan er stillanlegt frá 45-50cm.

▪Hásmenin eru fáanleg gyllt, rhodium og blönduð.

 

Efniviður

Þessi keðja er úr 925 sterling silfri með 18kt gullhúð.

Þessi keðja er framleidd á Ítalíu fyrir BY•L skartgripi. Ítalar eru sérfræðingar í keðjum og hafa verið leiðandi í tækni og framleiðslu keðja í áraraðir. Það kom því ekkert annað til greina en að finna góða og trausta samstarfsaðila á Ítalíu sem sjá um framleiðslu á öllum okkar keðjum.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.