Örk gullhringur
Vörulýsing
Hringurinn úr vörulínunni Örk er nú fáanlegur úr 14kt gulli & hvítagulli
Hann er með grófu yfirbragði en um leið fínlegur. Hringunum í Örk er hægt að stafla - það kemur mjög vel út!
▪ Val um 14kt gull eða hvítagull
▪Hringarnir í Örk koma í tveimur breiddum, mjóum og breiðum
▪ Hringurinn fæst í öllum stærðum. Lestu um hringastærðir hér: Hringastærðir
▪Örk línan er handsmíðuð á verkstæðinu okkar í Silfursmára.
▪Sé skartgripurinn ekki til á lager, getur því afgreiðslutími verið allt frá 2 dögum upp í eina viku.
Línan er fjölbreytt hrá, töff og elegant allt í bland! Formin og áferðin eru skemmtileg og blandast fallega saman og mynda heild. Sjón er sögu ríkari.
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Usually ready in 24 hours
Hringurinn er smíðaður í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir
- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá aðra stærð/veit ekki stærðina en stærðarbreyting á hringnum fylgir með.
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 14kt gulli.
Við notum 14kt gull vegna þess að það er harðara en 18kt gull og hentar því einkar vel fyrir skartgripi sem notaðir eru dags daglega.
Við bjóðum þó upp á sérsmíði með 18kt gulli ef viðkomandi óskar eftir því.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.
Pantanir yfir 25.000 kr:
Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.
Pantanir undir 25.000 kr:
Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.
Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.





