Gjafainnpökkun er innifalin

Pöntun afgreidd eins fljótt og auðið er

Handsmíðað á verkstæðinu

Klassískur demantshringur - Solitaire

Verð kr129,000
Demantsstærð: .05ct
Eðalmálmur: 14kt gull
Ein stærðarbreyting fylgir með kaupum samkvæmt skilmálum okkar.

Eigum við að pakka inn?
Vörunúmer: g04-605
Vörulýsing

Solitaire hringurinn okkar er tímalaus klassík þar sem einn demantur fær að njóta sín.

Solitaire er mjög vinsæll trúlofunarhringur. Hönnunin er klassísk og dregur fram fegurð demantsins. Solitaire hringarnir eru smíðaðir á verkstæðinu okkar. Við notum einungis demanta í góðum gæðum.

Heitið Soli kemur úr frönsku og vísar til orðsins stakur. 

▪ Smíðaður úr 14kt gulli eða hvítagull (585)

Hringastærðir

Hringurinn er fáanlegur í öllum hringastærðum. Ef þú ert óviss um rétta stærð geturðu skoðað leiðbeiningar okkar um hringastærðir.

Veistu ekki hringastærðina?

Ef hringurinn á að koma á óvart eða þú veist ekki nákvæma stærð, veldu einfaldlega „Veit ekki stærðina“ í stærðarvalinu hér að ofan.

Ein stærðarbreyting fylgir með kaupum, svo lengi sem komið er með hringinn innan mánaðar frá afhendingu.

Efniviður

Demantshringarnir okkar eru smíðaðir úr 14kt gulli eða hvítagulli með náttúrulegum demöntum í mismunandi stærðum og útfærslum.

Upplýsingar um stærð, gæði og vottun demanta koma fram í vörulýsingu hvers hrings. Sumir demantanna eru GIA-vottaðir og er það þá sérstaklega tekið fram.

Á gullsmíðaverkstæði BY•L í Silfursmára bjóðum við einnig upp á sérsmíði og aðstoðum við að velja demanta og útfæra hring eftir þínum óskum.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, byl@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.