Áletrun innifalin

Sérsmíði í boði

Handsmíðað á verkstæðinu

Giftingarhringur - Demantslína

Val er um form, breidd á baug ásamt stærð eða fjölda demanta

Demantar/breidd
Eðalmálmur: 14kt gull
Form

Handfræst áletrun innan í hringnum er innifalin

Verð:
Verð kr193,000
Vörunúmer: g14-136
Vörulýsing

Giftingarhringur með demöntum í beinni línu þvert á baug. Smíðaðir úr 14kt gulli eða hvítagulli.

Val er um form, breidd á baug ásamt fjölda & stærð demanta;

Signature - mjög veglegir & efnismiklir. Hálfkúptir að innan sem utan svo þeir eru mjög þægilegir í daglegu lífi.

Signature 2 - ekki eins efnismiklir & Signature, en jafn þægilegir að bera. 

  • 4mm breiðir baugar eru með 2 x .02ct demöntum, stærð samtals= .04ct TW vs1
  • 5mm breiðir baugar eru með 3 x .01ct demöntum, stærð samtals= .03ct TW vs1
  • 6mm breiðir baugar eru með 4 x .01ct demöntum, stærð samtals= .04ct TW vs1

ATHUGIÐ vörumynd er af 6mm breiðum baug með 4 x .01ct demöntum

Giftingarhringar

Afgreiðslutími er misjafn en yfirleitt um vika. 

Afgreiðslutími er gefinn út daginn eftir pöntun en hafið samband ef þið eruð með ákveðinn tíma í huga.

Handfræst áletrun er innifalin í verði á öllum okkar giftingarhringum, val er um að fá handgrafna áletrun gegn aukagjaldi. Munurinn á handfræstri og handgrafinni áletrun, er að þegar handgrafið er í hringinn er áletrunin dýpri.

Giftingarhringarnir ykkar þurfa ekki að vera eins. Þið getið valið mismunandi form, breiddir, gulltegundir og áferðir og bætt við demöntum eða öðrum sérútfærslum eftir ykkar óskum.

Hægt er að fá demanta í alla hringa ef þess er óskað, ýmiskonar áferðir eða áletrun. 


Hringastærðir

Hringurinn er smíðaður í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir

- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá veit ekki stærðina hér fyrir ofan. Þú getur svo komið í mælingu hjá okkur, stærðarbreyting á hringnum fylgir með innan mánaðar frá afhendingu. 

Efniviður

Giftingarhringarnir okkar eru almennt smíðaðir úr 14kt gulli
og hvítagulli (585).

Við bjóðum einnig upp á sérsmíði úr 18kt gulli.

 Við notum aðeins náttúrulega demanta í okkar skartgripi.
Demantarnir okkar eru frá birgjum með alþjóðlega vottun – Conflict free. Öll demantaísetning fer fram hér.  

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, byl@byl.is.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum er ekki hægt að skipta/skila.

Ef þig vantar ráðgjöf við val á réttu hringunum eða sérsmíði, ekki hika við að bóka ráðgjöf með gullsmiðunum okkar.