Giftingarhringur - Stjörnuskurður
Vörulýsing
Giftingarhringur með demanti/demöntum í stjörnuskurði
- Smíðaðir úr 14kt gulli eða hvítagulli
Val er um form, breidd á baug ásamt stærð demants;
Signature - þeir eru mjög veglegir & efnismiklir - okkar fullkomna form á hring! Hálfkúptir að innan sem utan svo þeir eru mjög þægilegir í daglegu lífi.
- 3mm breiðir baugar eru með .02ct demanti TW vs1
- 4mm breiðir baugar eru með .03ct demanti TW vs1
- 5mm breiðir baugar eru með .05ct demanti TW vs1
- 6mm breiðir baugar eru með .05ct demanti TW vs1
Signature 2 - þeir eru ekki eins efnismiklir & Signature, en jafn þægilegir að bera.
- 3mm breiðir baugar eru með .02ct demanti TW vs1
- 4mm breiðir baugar eru með .03ct demanti TW vs1
- 5mm breiðir baugar eru með .03ct demanti TW vs1
- 6mm breiðir baugar eru með .03ct demanti TW vs1
ATHUGIÐ vörumynd er af 4mm breiðum baug með .03ct demanti
- Handfræst áletrun er innifalin í verði á öllum okkar giftingarhringum, val er um að fá handgrafna áletrun gegn aukagjaldi. Munurinn á handfræstri og handgrafinni áletrun er að þegar handgrafið er í hringinn er áletrunin dýpri.
Samsetning hringapars getur verið í mismunandi formi, breidd, gulllit, áferð, með demanti og svona mætti áfram telja - allt eftir ykkar höfði.
Afhendingartími er mismunandi en gefinn út daginn eftir pöntun.
Hægt er að fá demanta í alla hringa ef þess er óskað, mismunandi áferðir eða áletrun - endilega hafið samband við okkur á lovisa@byl.is eða bókið tíma í ráðgjöf hér.
Hringurinn er smíðaður í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir
- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá aðra stærð/veit ekki stærðina en stærðarbreyting á hringnum fylgir með.
Giftingarhringarnir okkar eru almennt smíðaðir úr 14kt gulli
og hvítagulli (585).
Við bjóðum einnig upp á sérsmíði úr 18kt gulli.
Við notum aðeins náttúrulega demanta í okkar skartgripi.
Demantarnir okkar eru frá birgjum með alþjóðlega vottun – Conflict free. Öll demantaísetning fer fram hér.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.
Pantanir yfir 25.000 kr:
Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.
Pantanir undir 25.000 kr:
Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum er ekki hægt að skipta/skila.







