Frost tvöföld hálsfesti & Hrygg mirror fínlegt armband
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst
Sparilegt og veglegt sett af tvöfaldri hálsfesti úr Frost línunni & fínlegt armband úr Hrygg mirror línunni sem kemur einstaklega vel út saman!
Hrygg mirror armbandið er klassískt og glæsilegt. Liggur fallega, er slétt, þæginlegt og háglans.
▪ Armbandið er úr silfri
▪ Fæst með 18kt gyllingu og rhodium húðun (silfurlitað)
▪ 3mm á breidd
▪ Armandið er stillanlegt frá 16-18mm
Tvöföld útfærsla á Frost keðjunni okkar vinsælu. Frost fínleg og Hrygg saman í einni festi!
▪ Hálsfestin er úr silfri
▪ Fæst með 18kt gyllingu (gulllituð) eða með rhodium húðun (silfurlitað)
▪ Hlekkirnir í fínlegu Frost eru 8x3mm, Hrygg er 2mm breið
▪ Hálsfestin er stillanleg frá 40 - 50cm
Skartgripirnir í Frost eru fallega hrímaðir með demantsskurði sem gefur þeim skemmtiilega glansandi áferð.
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri. Fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt. Með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.
Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að skilja eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar - einnig ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, láttu okkur vita á sama stað.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.
Pantanir yfir 25.000 kr:
Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.
Pantanir undir 25.000 kr:
Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.
Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.




