Gjafainnpökkun er innifalin 

Pöntun afgreidd eins fljótt og auðið er

Frí sending - yfir 25.000 kr

Ferðaskartgripaskrín / sporöskjulaga

Verð kr5,900

Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst

Vörunúmer: 17-017
Vörulýsing

Fallegt sporöskjulaga skartgripaskrín sem passar vel upp á skartgripina heima eða í ferðalaginu! Þú getur skipulagt skartgripina vel í þessu rúmgóða skríni.

Lengd: 18,5 cm

Breidd: 11 cm

Hæð: 4,5 cm


Skartgripaskrín

Við mælum alltaf með að geyma skartgripi á góðum stað, í lokuðum boxum eða skrínum. Allir okkar skartgripir eru einungis gerðir úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli. 

Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhoodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.

Það fer betur með skartgripi úr eðalmálmum ef þeir eru geymdir á þurrum, dimmum stað - þá fellur síður á þá. Það er svo gott að eiga hreinsiklút og hreinsivökva til að halda skartgripunum skínandi fallegum til framtíðar.

Hvernig á að hugsa um skartgripi?

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@bylovisa.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skilafrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.