Ásta gullmen með litlu hjarta & klassískir litlir hoops lokkar / 14kt gull
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst
Tímalaust & fínlegt sett af hálsmeni og lokkum til þess að vera með alla daga, smíðað úr 14kt gulli. Hálsmen úr Ástu línunni, lítið gullhjarta með mjúkum línum á fínlegri keðju & hoops gulllokkar með sömu mjúku línunum.
▪ Keðjan á meninu er 45cm löng
▪ Hjartað er um 11,3mm x 6,3 mm
▪ Hoops lokkarnir eru 15 mm í þvermál
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 14kt gulli.
Við notum 14kt gull vegna þess að það er harðara en 18kt gull og hentar því einkar vel fyrir skartgripi sem notaðir eru dags daglega.
Við bjóðum þó upp á sérsmíði með 18kt gulli ef viðkomandi óskar eftir því.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að skilja eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar - einnig ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, láttu okkur vita á sama stað.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.
Pantanir yfir 25.000 kr:
Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.
Pantanir undir 25.000 kr:
Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.
Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.



