Alliance demantshringur með Safír
Vörulýsing
Alliance hringur með demöntum og Safír
▪ Smíðaður úr 14kt hvítagulli
▪ Sex demantar, stærð samtals = .3ct
▪ Fimm safírar, stærð samtals= .25ct
▪ Við notum náttúrulega demanta í okkar skartgripi í gæðum TW-VS1
▪ Athugið að hringurinn er sérsmíðaður eftir pöntunum, afhending getur tekið allt upp í eina viku
Hringurinn er fáanlegur í öllum hringastærðum. Ef þú ert óviss um rétta stærð geturðu skoðað leiðbeiningar okkar um hringastærðir.
Veistu ekki hringastærðina?
Ef hringurinn á að koma á óvart eða þú veist ekki nákvæma stærð, veldu einfaldlega „Veit ekki stærðina“ í stærðarvalinu hér að ofan.
Ein stærðarbreyting fylgir með kaupum, svo lengi sem komið er með hringinn innan mánaðar frá afhendingu.
Efniviður
Demantshringarnir okkar eru smíðaðir úr 14kt gulli eða hvítagulli með náttúrulegum demöntum í mismunandi stærðum og útfærslum.
Upplýsingar um stærð, gæði og vottun demanta koma fram í vörulýsingu hvers hrings. Sumir demantanna eru GIA-vottaðir og er það þá sérstaklega tekið fram.
Á gullsmíðaverkstæði BY•L í Silfursmára bjóðum við einnig upp á sérsmíði og aðstoðum við að velja demanta og útfæra hring eftir þínum óskum.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, byl@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.
Pantanir yfir 25.000 kr:
Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.
Pantanir undir 25.000 kr:
Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.
Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.


