Gjafainnpökkun er innifalin 

Pöntun afgreidd eins fljótt og auðið er

Frí sending - yfir 25.000 kr

Stilla eyrnalokkar með dropa og náttúrusteinum

Verð kr24,800

Náttúrusteinn: Peridot & Ametyst
Litur: Gylltir
Vörunúmer: 31-066
Vörulýsing

Einir af okkar vinsælustu eyrnalokkum með dropanum en nú einnig með tveimur náttúrusteinum sem mynda fallega heild.  

▪ Eyrnalokkarnir er úr silfri

▪ Fæst með 18kt gyllingu og rhodium húðun (silfurlitaðir)

▪ Hægt er að velja um fimm samsetningar af náttúrusteinum. 

▪ Silfurdropinn er um 12mm, stærri náttúrusteinninn er um 10mm og sá minni um 4mm 

▪ Eyrnalokkurinn (hringurinn) er 15mm í þvermál

Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst


Stilla

Stilla fæddist hægt og rólega árið 2022 með einfalda hálsmeninu með einum dropa en árið 2023 urðu skartgripirnir að heilli línu sem við sjáum í dag. Fyrst um sinn var Stilla aðeins úr silfri, silfri með 18kt gyllingu og náttúrusteinum en í dag er einnig hægt að fá Stillu í 14kt gulli og hvítagulli með hrádemöntum. 

Mjúka afslappaða form dropans er einkenni Stillu. Í skartgripunum blandast saman eðalmálmar og fallegir náttúrusteinar í undurfögrum litatónum. Stilla er veðurfar, fátt er fallegra en kyrrð og værð í stillu.

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri. Fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt. Með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.