Gjafainnpökkun er innifalin

Pöntun afgreidd eins fljótt og auðið er

Frí sending - yfir 25.000 kr

Unicorn hoops eyrnalokkar með náttúrusteinum

Verð kr17,800
Lokkastærð: Litlir
Litur: Bronz/silfur
Vörunúmer: 6-0130
Vörulýsing

Unicorn skartgripalínan er hrá og töff, unnin úr oxideruðu bronzi og svörtu silfri. Skemmtilegir og töff eyrnalokkar með rauðum Garnet náttúrusteinum sem tekið er eftir.

▪ Unicorn hornin eru smíðuð úr bronzi sem er oxiderað.

▪ Hoops eyrnalokkarnir eru úr silfri með svartri rhodium húð.

▪ Val er um tvær stærðir af lokkum, 20mm þvermál eða 32mm þvermál

▪ Stærð horna: 24mm x 2stk.

▪ Með hornunum eru tveir garnet náttúrusteinar.


UNICORN er handsmíðað á verkstæðinu okkar í Silfursmára.

▪  Sé skartgripurinn ekki til á lager, getur því afgreiðslutími verið allt frá tveimur dögum upp í eina viku.

Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst


Efniviður

Þessi skartgripur er úr oxideruðu bronsi og 925 sterling silfri sem hefur verið rhodiumhúðað svart.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.