Örk hálsfestar + mjó Fiskiflétta / Gyllt

Verð kr74,900
🎁 Viltu að við pökkum inn fyrir þig? Skildu þá eftir athugasemd í körfunni.

Í þessu veglega setti eru tvær hálsfestar úr Örk línunni, önnur er fínleg Örk keðja og hin er með 5 einingum á keðjunni og með þessu setjum við svo mjóa Fiskifléttu! Þú sérð á mynd af módeli hvernig þessi samsetning kemur út, við elskum hana! 

Fiskiflétta - mjó: 

▪ Hálsfestin er úr 925 sterling silfri með 18kt gyllingu

▪ Festin er stillanleg frá 40-50cm.

▪ Festin er 6mm að breidd.

▪ Hálsfestin er einnig fáanleg silfurlituð (rhodium húðuð) 

 

Örk, fínleg keðja: 

▪ Hálsfestin er úr 925 sterling silfri með 18kt gyllingu

▪ Örk hálsfestin er með einstaklega fallegu mynstri.

▪ Festin er fínleg en um leið gróf.

▪ Festin er stillanlegt frá 40-50cm.

▪ Hálsfestin er einnig fáanleg silfurlituð (rhodium húðuð) 

 

Örk með 5x einingum: 

▪ Hálsfestin er úr 925 sterling silfri með 18kt gyllingu

▪ 5x einingar hanga á fallegu Örk keðjunni.

▪ Keðjan er stillanlegt frá 45-50cm.

▪ Hálsfestin er einnig fáanleg silfurlituð (rhodium húðuð) 

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri. Fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt. Með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að skilja eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar - einnig ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, láttu okkur vita á sama stað.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.