Ský hringur með demanti

Verð kr296,000

Demantsstærð: .25ct
Eðalmálmur: 14kt gull
Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörunúmer: g13-025
Vörulýsing

Ský skartgripalínan okkar er öll smíðuð úr 14kt gulli & hvítagulli. Línan er hrjúf en á sama tima með mjúkar línur - eins og ský.

Hringurinn er óreglulegur með oval laga demanti.

▪ Smíðað úr 14kt gulli og hvítagulli 585

▪ Hægt er að velja um stærð Oval laga demants

Stærð= .25ct - gæði demants SI1 - hringurinn er um 5mm breiður

Stærð= .40ct - GIA vottaður demantur - hringurinn er um 6mm breiður

▪ Hringur með .25ct er um 5mm þar sem hann er breiðastur

▪ Hringur með .40ct er um 6mm þar sem hann er breiðastur


▪ Hringurinn er smíðaður í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir

- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá aðra stærð/veit ekki stærðina en stærðarbreyting á hringnum fylgir með.

 

 

 

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 14kt gulli eða hvítagulli með náttúrulegum demanti.

Allir okkar demantar eru í gæðum TW-VS1 nema annað sé tekið fram í vörulýsingu. Demantarnir okkar eru frá birgjum með alþjóðlega vottun – Conflict free. Öll demantaísetning fer fram hér.

Náttúrulegir demantar eru einstakir, engir tveir eru eins.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.