Skartgripaskrín - Þriggja hæða
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst
Vörulýsing
Fallegt og rúmgott skartgripaskrín úr velúr. Skartgripaskrínið rúmar eyrnalokka, hringi og hálsmen. Hólfin eru misstór og því auðvelt að halda utan um skartið sitt. Hægt er að lyfta upp hólfunum og geyma þar stærri hálsmen.
-
3 hæðir með mis stórum hólfum
-
Skrínið er 18 cm á breidd og 28 cm að lengd
- Hver hæð er 5 cm
Við mælum alltaf með að geyma skartgripi á góðum stað, í lokuðum boxum eða skrínum. Allir okkar skartgripir eru einungis gerðir úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli.
Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhoodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.
Það fer betur með skartgripi úr eðalmálmum ef þeir eru geymdir á þurrum, dimmum stað - þá fellur síður á þá. Það er svo gott að eiga hreinsiklút og hreinsivökva til að halda skartgripunum skínandi fallegum til framtíðar.
Hvernig á að hugsa um skartgripi?
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@bylovisa.is.
Skilafrestur
Ef þú vilt fá þessa vöru senda til þín, þarftu að senda okkur tölvupóst og greiða fyrir það sérstaklega, vegna stærðar hennar & umfangs við sendinguna.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.









