Áletrun innifalin

Sérsmíði í boði

Handsmíðað á verkstæðinu

Ef þig vantar ráðgjöf við val á réttu hringunum eða sérsmíði, ekki hika við að bóka ráðgjöf með gullsmiðunum okkar.

Giftingarhringur - Grófur


Demantur
Þykkt
Eðalmálmur: 14kt gull

Verð:
Verð kr211,000
Vörulýsing

Hringur með grófri, óreglulegri áferð og glansandi köntum.

Smíðaður úr 14kt gulli og hvítagulli

Val er um tvær þykktir

▪ Val er um að setja demant í þykkari hringinn, stærð demanta:

  • .03ct TW vs1
  • .07ct TW vs1
  • .10ct TW vs1

▪ Vörumynd af hring með demanti í stærð: .10ct 

Fræst áletrun inn í giftingarhringa er innifalin en hægt er að greiða aukalega fyrir handgröft inn í hringinnn. 



Skoðaðu fleiri gerðir af hringum

Giftingarhringar

Samsetning hringapars getur verið í mismunandi formi, breidd, gulllit, áferð, með demanti og svona mætti áfram telja - allt eftir ykkar höfði.

Afhendingartími er mismunandi en gefinn út daginn eftir pöntun.

Hægt er að fá demanta í alla hringa ef þess er óskað, mismunandi áferðir eða áletrun - endilega hafið samband við okkur á lovisa@byl.is eða bókið tíma í ráðgjöf hér.

 

Hringastærðir

Hringurinn er smíðaður í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir

- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá aðra stærð/veit ekki stærðina en stærðarbreyting á hringnum fylgir með.

Efniviður

Giftingarhringarnir okkar eru almennt smíðaðir úr 14kt gulli og hvítagulli (585).

Við bjóðum einnig upp á sérsmíði úr 18kt gulli.

Við notum aðeins náttúrulega demanta í okkar skartgripi. Demantarnir okkar eru frá birgjum með alþjóðlega vottun – Conflict free. Öll demantaísetning fer fram hér.

 

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum er ekki hægt að skipta/skila.