Gjafainnpökkun er innifalin

Pöntun afgreidd eins fljótt og auðið er

Handsmíðað á verkstæðinu

Örk demantshringur

Verð kr148,000

Breidd: Mjór
Eðalmálmur: 14kt gull
Vörulýsing

Hringurinn úr vörulínunni Örk er nú fáanlegur úr 14kt gulli & hvítagulli með demöntum

Hann er með grófu yfirbragði en um leið fínlegur. Hringunum í Örk er hægt að stafla - það kemur mjög vel út!

▪ Hringurinn er smíðaður úr 14kt gulli & hvítagulli

▪ Val er um breidd og demantsstærð

  • Mjór hringur með fjórum demöntum, stærð samtals= .06ct TW vs1
  • Breiður hringur með átta demöntum, stærð samtals= .18ct TW vs1
Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Hringastærðir

Hringurinn er smíðaður í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir

- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá aðra stærð/veit ekki stærðina en stærðarbreyting á hringnum fylgir með.

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 14kt gulli eða hvítagulli með náttúrulegum demanti.

Allir okkar demantar eru í gæðum TW-VS1 nema annað sé tekið fram í vörulýsingu. Demantarnir okkar eru frá birgjum með alþjóðlega vottun – Conflict free. Öll demantaísetning fer fram hér.

Náttúrulegir demantar eru einstakir, engir tveir eru eins.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.