HRINGAR

GJAFAINNPÖKKUN ER INNIFALIN

Hakaðu við innpökkun í vöruspjaldinu  

PANTANIR AFGREIDDAR EINS FLJÓTT OG AUÐIÐ ER

Veldu um að sækja eða fá sent með Dropp eða Póstinum 

FRÍ SENDING

Á pöntunum yfir 25.000 kr 
Frí sending á pöntunum yfir 25.000 kr
Síur
Flokka eftir

HVERNIG VEL ÉG HRING?

Þegar þú velur hring skiptir bæði stíll og stærð máli. Sumir hringar eru fallegir einir og sér á meðan aðrir eru sérstaklega skemmtilegir þegar nokkrum hringum er raðað saman. Það má blanda saman ólíkri breidd, áferð, steinum og jafnvel litum málma til að skapa sinn eigin stíl.

Rétt hringastærð skiptir líka máli svo hringurinn sitji vel.

 Skoða leiðbeiningar um hringastærðir.

SILFUR, GYLLT EÐA GULL?

Hringar BY•L fást úr 925 sterling silfri, gylltu silfri, 14kt gulli og hvítagulli. Silfur og gyllt silfur eru skemmtilegur kostur þegar þú vilt leika þér með ólíka stíla, blanda saman hringum eða breyta reglulega um samsetningu.

Hringar úr 14kt gulli og hvítagulli eru úr verðmætari málmi og eru því oft valdir í stærri gjafir eða þegar tilefnið er sérstakt. Úrvalið nær þó frá fíngerðum hringum sem fallegt er að stafla saman yfir í veglegri hringi með demöntum og eðalsteinum.

ALGENGAR SPURNINGAR UM HRINGI

Hvernig finn ég rétta hringastærð?

Rétt hringastærð fer bæði eftir fingri og gerð hringsins. Breiðari hringir geta til dæmis setið þéttar en fíngerðir hringir. Þú getur notað hringastærðarleiðbeiningarnar okkar til að finna rétta stærð eða komið til okkar í verslunina þar sem við aðstoðum þig við að mæla.

SKOÐA LEIÐBEININGAR

Er hægt að stækka eða minnka hring frá BY•L?

Já, ein stækkun eða minnkun fylgir með þegar þú kaupir hring frá BY•L. Þegar hringur er keyptur sem gjöf er auðvitað ekki alltaf hægt að vita nákvæma hringastærð og það sama getur átt við þegar hringur er keyptur á netinu án þess að máta hann fyrst.

Þess vegna bjóðum við upp á eina stærðarbreytingu án aukakostnaðar innan mánaðar frá afhendingu. Eftir þann tíma er hægt að koma með hringinn til okkar í stærðarbreytingu gegn vægu gjaldi.

Hver er munurinn á gylltum silfurhring og gullhring?

Gylltir hringar eru úr 925 sterling silfri með 18kt gyllingu. Þar sem hendur eru mikið notaðar í daglegu lífi verða hringar fyrir meiri núningi og álagi en margir aðrir skartgripir og því getur gyllingin slitnað hraðar. Við mælum með að fara sérstaklega vel með gyllta hringi, taka þá af við handþvott, sturtu, líkamsrækt, þrif og aðra vinnu þar sem þeir geta blotnað, rispast eða orðið fyrir núningi. Gylltir hringar henta því sérstaklega vel þegar þú vilt nota þá spari eða skipta reglulega á milli hringa.

Ef gyllingin hefur slitnað er hægt að koma með BY•L hring til okkar og láta gylla hann aftur gegn vægu gjaldi.

Hringur úr 14kt gulli er hins vegar úr gulli í gegn og því er engin gylling sem getur slitnað af. Gullhringir henta vel til daglegrar notkunar en eins og aðrir sléttir fletir úr eðalmálmum geta þeir rispast við notkun. Ef þú vilt halda hringnum sem allra fallegustum mælum við til dæmis með að taka hann af við líkamsrækt með lóðum og aðra vinnu þar sem hann getur orðið fyrir miklum núningi eða höggum.

Hvernig raða ég nokkrum hringum saman?

Það eru engar fastar reglur þegar hringum er staflað saman. Prófaðu að blanda saman fíngerðum og breiðari hringum, ólíkri áferð og hringum með og án steina. Sumir vilja hafa samsetninguna einfalda en aðrir stafla mörgum ólíkum hringum saman.