Áletrun innifalin 

Sérsmíði í boði 

Handsmíðað á verkstæðinu

Ef þig vantar ráðgjöf við val á réttu hringunum eða sérsmíði, ekki hika við að bóka ráðgjöf með gullsmiðunum okkar.

Vinsælt giftingarhringapar - Signature - 6mm & 6mm með demöntum / 14kt gull


Verð:
Verð kr566,400
Vörulýsing

Signature giftingarhringapar þar sem báðir eru 6mm breiðir en annar er með 4x 0,01ct demöntum.

Signature hringurinn er okkar fullkomna form á giftingarhring. Hann er hálfkúptur að  utan og innan sem gerir hann mjög þægilegan í daglegu lífi og er klassískur og tímalaus.

  • 14kt Gull (585) 
  • 4x 0,01ct= 0,04ct demantar
  • Við notum náttúrulega demanta í okkar skartgripi í gæðum TW-VS1
  • Áletrun er innifalin í verðinu á öllum okkar giftingarhringum
  • Afhendingartími er mismunandi en gefinn út daginn eftir pöntun.


Skoðaðu fleiri gerðir af hringum

Giftingarhringar

Við settum saman nokkur vinsæl giftingarhringapör til að gefa hugmyndir.

Samsetning hringapars getur verið í mismunandi formi, breidd, gulllit, áferð, með demanti og svona mætti áfram telja - allt eftir ykkar höfði.

Afhendingartími er mismunandi en gefinn út daginn eftir pöntun.

Hægt er að fá demanta í alla hringa ef þess er óskað, mismunandi áferðir eða áletrun - endilega hafið samband við okkur á lovisa@byl.is eða bókið tíma í ráðgjöf hér.

Hringastærðir

Hringarnir eru smíðaðir í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir

- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá aðra stærð/veit ekki stærðina en stærðarbreyting á hringnum fylgir með.

Efniviður

Giftingarhringarnir okkar eru almennt smíðaðir úr 14kt gulli og hvítagulli (585).

Við bjóðum einnig upp á sérsmíði úr 18kt gulli.

Við notum aðeins náttúrulega demanta í okkar skartgripi. Demantarnir okkar eru frá birgjum með alþjóðlega vottun – Conflict free. Öll demantaísetning fer fram hér.  

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.