Tails demantshringur

Verð kr79,000
Frá BY•L

Demantsstærð: .03ct
Litur: Hvítur
Eðalmálmur: 14kt gull
🎁 Viltu að við pökkum inn fyrir þig?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörunúmer: g03-003
Vörulýsing

Tails hringur með demanti er einfaldur en flottur! Kemur mjög vel út að stafla með fleiri Tails hringum eða úr öðrum línum. 

▪ Hringurinn er smíðaður úr 14kt gulli og hvítagulli

▪ Val um stærð á demanti og lit:

  • .03ct bleikur eða grænn demantur
  • .03ct demantur í gæðum TW vs
  • .05ct demantur í gæðum TW vs
  • .10ct demantur í gæðum TW vs

▪Við notum náttúrulega demanta í okkar skartgripi

▪ Breidd á hringum: 2mm með .03ct demanti en 3mm með stærri demöntum

 

▪ Hringurinn er smíðaður í öllum stærðum, þú getur skoðað meira um hringastærðir hér: Hringastærðir

- ef þú veist ekki stærðina, veldu þá aðra stærð/veit ekki stærðina en stærðarbreyting á hringnum fylgir með.

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 14kt gulli með náttúrulegum demanti.

Allir okkar demantar eru í gæðum TW-VS1 nema annað sé tekið fram. Demantarnir okkar eru frá birgjum með alþjóðlega vottun – Conflict free. Öll demantaísetning fer fram hér.

Náttúrulegir demantar eru einstakir, engir tveir eru eins.

Umhirða gullskartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma þá í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L eða í skartgripaskrínum. Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Gullskartgripi (14kt gull +) má fara með í sund og sturtu án þess að falli á þá. Það er þó margt annað sem hefur áhrif, td húðfita, krem, olíur eða ilmvatn. Ef þú ert mikið með skartgripinn þinn kemur á hann fita sem hægt er að þrífa af með sápuvatni, mjúkum bursta, hreinsiefnum og klútum - einnig getur gerst að gull dökknar aðeins í vatninu okkar hér á Íslandi.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum eða Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.