Giftingarhringur - Kúptur - 4mm til 5mm - 14kt gull

Verð kr124,000
Frá BY•L

Hver er hringastærðin þín?

Það er mjög algengt að fólk viti ekki hringastærðina sína. Það er þó nokkuð auðvelt að finna rétta hringastærð heima fyrir en það eru tvær leiðir sem við mælum með ef þú kemst ekki til okkar í mælingu.

Smelltu hér til að finna rétta stærð.

ATH. afgreiðsla á þessum skartgrip getur verið allt að einni viku.

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 5+ days

Vörunúmer: g14-180
Vörulýsing

Giftingarhringur kúptur að utan en hálfkúptur að innan sem er þægilegt form.

-              14kt Gull (585)

-              Tvær breiddir 4mm og 5mm

-              Áletrun er innifalin í verðinu á öllum okkar giftingarhringum

-              Samsetning hringapars getur verið í mismunandi formi, breidd og gulllit.

-              Afhendingartími er mismunandi en gefinn út daginn eftir pöntun.

Þið getið einnig bókað tíma með gullsmið viljið þið fá sérfræðiaðstoð við valið eða sérsmíði.
Efniviður

Giftingarhringarnir okkar á lager eru smíðaðir úr 14kt gulli (585).

Við bjóðum einnig upp á sérsmíði úr 18kt gulli.

 

Hvernig á að hugsa um skartgripi?

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Fyrir frekari upplýsingar um meðferð skartgripa ekki hika við að hafa samband, lovisa@bylovisa.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skilafrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með póstinunum er hægt er að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr. bæði með Póstinum og Dropp.