Gjafainnpökkun er innifalin 

Pöntun afgreidd innan 24 klst. 

Frí sending - yfir 25.000 kr

Fairy Tale hálsmen með 3 eðalsteinum

Verð kr167,500

Eðalsteinar: Ametyst
Eðalmálmur: 14kt gull
Vörulýsing

Fairy Tale skartgripalínan okkar er öll smíðuð úr 14kt gulli og hvítagulli. Skartgripirnir í línunni eru með með perulaga náttúrusteinum og demöntum.

Skartgripirnir í línunni eru einstakir, keðjurnar á hálsmenunum eru demantsskornar með fínlegu mynstri, steinar og demantar eru einnig allir í toppgæðum.  

Fairy Tale hálsfestin með þremur eðalsteinum er einstök og fínleg:

▪ Festin er stillanleg frá 42-47cm.

▪ Festin sjálf er fínleg og demantsskorin.

▪ Eðalsteinarnir í meninu eru þrír 7x5mm perulaga náttúrusteinar.

▪ Hálsmenið er fáanlegt með náttúrusteinunum: 

  • Ametyst ljósfjólublár
  • Peridot ljósgrænn
  • Rose quartz fölbleikur
  • Topaz ljósbláum
  • Morganite fölbleikur/ljósbrúnn

▪ ATHUGIÐ að um náttúrusteina er að ræða svo að litatónn getur verið mismunandi og ekki alveg eins og myndir sýna. 

 

▪ Sjón er sögu ríkari - menið er líka fullkomið t.d með Fiskifléttunni í 14kt gulli.


 


Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörunúmer: g01-013
Efniviður

Þessi skartgripur er úr 14kt gulli.

Við notum 14kt gull vegna þess að það er harðara en 18kt gull og hentar því einkar vel fyrir skartgripi sem notaðir eru dags daglega.

Við bjóðum þó upp á sérsmíði með 18kt gulli ef viðkomandi óskar eftir því.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.