FRÉTTIR & FRÓÐLEIKUR
Frí gjafainnpökkun
Við hjá BY•L viljum að gjöfin sé tilbúin til afhendingar um leið og hún kemur í hendurnar á þér. Þess vegna bjóðum við alltaf upp á fría gjafainnpökkun, bæði í verslun og á vefverslun okkar.
Hringastærðir
Það er mjög algengt að fólk viti ekki hringastærðina sína, það er í rauninni bara undantekning ef fólk er með hana á hreinu þegar það verslar sér hringa hjá okkur, hvort sem það er í vefverslun eða í Silfursmáranum. Það er þó nokkuð auðvelt að finna rétta hringastærð heima fyrir en það eru tvær leiðir sem við mælum með ef þú kemst ekki til okkar í mælingu.


