NÁTTÚRULEGUR EÐA LAB DEMANTUR

Við höfum vel fundið fyrir auknum áhuga á demantsskartgripum, sérstaklega þegar líða tók að jólum, hvort heldur sem er hringum, eyrnalokkum, hálsmenum eða armböndum. Í vetur bættum við heldur betur í úrvalið í demantsskartgripum hjá okkur t.d. mikið af einstökum hringum, í sérsmíði og erum við komin með klassísk og tímalaus Tennisarmbönd í vöruúrvalið.

Náttúrulegur eða manngerður demantur?

Páll Sveinsson, gullsmiður hjá okkur í BY•L fjallaði um muninn á náttúrulegum og manngerðum demöntum, eða laboratory grown demöntum, í Viðskiptablaðinu - Þú getur lesið alla fréttina hér.

Páll er nefndarmaður Fræðslunefndar Félags íslenskra gullsmiða og hefur í áraraðir verið í fararbroddi í fræðslu um demanta og gæðaviðmið í skartgripaiðnaðinum. 

Grunnurinn að góðum skilningi á demöntum felst í því að vita fyrst hvaða efni um ræðir. „Demantur er einfalt efni á pappírnum – bara kolefni – en ferlið sem hann hefur gengið í gegnum gerir hann einstakan,“ segir hann. Náttúrulegir demantar hafa myndast djúpt í jörðinni fyrir gríðarlega löngu síðan og það geri þá að takmarkaðri auðlind og fágætri í góðum gæðum.

Þegar við spyrjum hann um manngerða eða svokallaða laboratory-grown demanta segir Páll að þeir líti út eins og náttúrulegir og séu metnir eftir sömu viðmiðum, en að uppruninn sé allt annar. Þeir eru framleiddir í verksmiðjum, aðallega með tveimur aðferðum sem endurtaka ákveðin skilyrði sem þurfa til þess að kolefni myndi kristal. „Það er mikilvægt að fólk skilji að þetta eru tvær vörur,“ segir hann. Bæði eru úr kolefni, bæði glitra og bæði eru flokkuð eftir 4C-kerfinu – lit, hreinleika, skurði og þyngd – en náttúrulegir demantar eru fágætir, sérstaklega í góðum gæðum og til að setja í samhengi er árs námavinnsla í heiminum að skila meðalstórum æfingabolta af 1ct demöntum og stærri á meðan framleiðslugetan á manngerðum demöntum er miklu meiri, eða að skila milljónum carata.

Páll bendir á að þessi munur á framboði hafi bein áhrif á verðmæti. Náttúrulegir demantar haldi verðgildi betur, en manngerðir demantar hafi í raun lítið eða ekkert endursöluverð. Það sé ekkert rangt við hvorugan kostinn, en fólk ætti að vita hvað fylgir hvorum. „Ef þú vilt stærri stein fyrir minni pening getur manngerður verið góður kostur, en ef þú vilt langtíma­verðmæti eða eitthvað sjaldgæft, þá er náttúrulegur rétt val,“ segir hann.

Rétt orðaval skiptir einnig miklu máli. Páll segir að það sé skýrt í alþjóðlegum leiðbeiningum að hægt sé að nota orðið „demantur“ eitt og sér aðeins um náttúrulega demanta. Þegar talað er um manngerða steina eigi að nota heitin „laboratory-grown“, „laboratory-created“ eða „synthetic“. Hugtök eins og „gervi“, „fake“, „vegan“ eða „vistvænn demantur“ eigi ekki við og geti villt um fyrir neytendum. Hann segir að heiðarleg framsetning sé bæði fagleg og nauðsynleg.

Demantaskírteini

Þá talar hann um mikilvægi skírteina. Í demöntum og gulli, viðskiptum almennt, skiptir traust mjög miklu máli. Með hverjum demanti ætti að fylgja skjal þar sem fram kemur uppruni, gæðamat og stærð hið minnsta. Ef verið er að spá í fjárfestingu, sérstaklega í stærri demöntum myndi Páll alltaf mæla með GIA eða sambærilegum skírteinum þar sem búið er að skrá og merkja alla aðal eiginleika og uppruna steinsins. Slíkt tryggir að kaupandi viti nákvæmlega hvað hann er að kaupa og auðveldar samanburð. „Skírteini er eins konar vegabréf steinsins,“ segir Páll.

Að lokum segir Páll að bæði náttúrulegir og manngerðir demantar eigi sér ákveðið hlutverk á markaði. Manngerðir henti vel í tískuiðnað og þar sem útlit og verð skipta mestu, en náttúrulegir demantar haldi áfram að standa fyrir fágæti, sögu og varanleika. „Það mikilvægasta er að fólk fái skýrar upplýsingar,“ segir hann. „Þegar þú skilur valkostina er miklu auðveldara að velja rétt fyrir sig, báðir valkostirnir henta frábærlega vegna hörku og endingar.“

Við notum að mestu leyti náttúrulega demanta í okkar skartgripum, en nýverið bjóðum við einnig upp á manngerða demanta, eða svokallaða LAB demanta (laboratory). Ef skartgripur er með LAB demanti er því vel gerð skil í vörulýsingu á vefverslun hjá okkur.