Fossflétta hálsfesti + armband + eyrnalokkar

kr46,400

Vörulýsing

Þetta er án efa vinsælasta gjafasettið sem inniheldur Fossfléttu hálsfesti, armband og eyrnalokka. Fossfléttan hefur verið ein af vinsælustu línunum okkar í nokkur ár og slær alltaf í gegn enda tímalaus og falleg. Fossfléttan er fínleg, demantsskorin sem glansar einstaklega fallega á. 

Hálsfesti:

▪ Hálsfestin er stillanleg frá 40-50cm.

▪ Fossflétta er 5mm breið.

Armband:

▪ Armbandið er stillanlegt frá 16 - 22cm.

▪ Armbandið er 5mm breitt.

Eyrnalokkar:

▪ Þvermál lokkanna er 18mm og breiddin 2,5mm.

▪ Læsingin er með vandaðri löm og krækju.

 

▪ Fossflétta er fáanleg rhodium, svört rhodiu, þrílit & gyllt.

Efniviður

Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli. 

Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.