SILFUR- GYLLTIR - OXI

HRINGAR

GJAFAINNPÖKKUN ER INNIFALIN

Hakaðu við innpökkun í vöruspjaldinu  

PANTANIR AFGREIDDAR EINS FLJÓTT OG AUÐIÐ ER

Veldu um að sækja eða fá sent með Dropp eða Póstinum 

FRÍ SENDING

Á pöntunum yfir 25.000 kr
Frí sending á pöntunum yfir 25.000 kr
Síur
Flokka eftir

HRINGAR TIL AÐ BLANDA & STAFLA

Silfur og gylltir hringar gefa mikið svigrúm til að prófa sig áfram með ólíkar samsetningar. Þú getur blandað saman fíngerðum og breiðari hringum, mismunandi áferð og hringum með eða án steina.

Það þarf heldur ekki að halda sig við einn lit. Silfur, gyllt og oxíderað silfur getur farið vel saman og með því að færa hringana á milli fingra eða bæta nýjum við er auðvelt að breyta heildarsvipnum.

UMHIRÐA Á GYLLTUM HRINGUM

Gylltir hringar eru úr 925 sterling silfri með 18kt gyllingu. Þar sem gyllingin er húð á yfirborði silfursins getur hún slitnað með tímanum og hringar verða fyrir meiri núningi en flestir aðrir skartgripir þar sem við notum hendurnar stöðugt í daglegu lífi.

Við mælum því með að taka gyllta hringi af við handþvott, sturtu, líkamsrækt, þrif og aðra vinnu þar sem þeir geta blotnað, rispast eða orðið fyrir miklum núningi. Með góðri umhirðu helst gyllingin falleg lengur.

Ef gyllingin hefur slitnað er ekkert mál að koma með hringinn til okkar í endurgyllingu gegn vægu gjaldi.