Haf perlufesti
Vörulýsing
Haf perlufesti er klassík!
▪ Smíðað úr silfri og ferskvatnsperlum
▪ Fæst með 18kt gyllingu (gylltur endi) og rhodium húðun (silfurlitað)
▪ Ferskvatnsperlurnar eru u.þ.b. 3-4mm
▪ Hálsfestin er stillanleg frá 40-50cm
- Haf línan fæst einnig í 14kt gulli & hvítagulli.
Haf skartgripalínan okkar er gerð á verkstæðinu okkar í Silfursmáranum. Línan er klassísk og elegant með fallegum ferskvatnsperlum. Haf skartgripunum er gaman að blanda með öðrum skartgripalínum, t.d Fossfléttu og Hrygg.
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Usually ready in 24 hours
Haf skartgripalínan okkar er gerð á verkstæðinu okkar í Silfursmáranum. Línan er klassísk og elegant með fallegum ferskvatnsperlum. Haf skartgripunum er gaman að blanda með öðrum skartgripalínum, t.d Fossfléttu og Hrygg.
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri með ferskvatnsperlum. Ferskvatnsperlurnar eru náttúrulegar, ekta perlur sem þýðir að engar tvær eru nákvæmlega eins.
Skartgripurinn fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt á litinn. Fæst einnig með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.
Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.
Pantanir yfir 25.000 kr:
Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.
Pantanir undir 25.000 kr:
Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.
Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.





