Fairy Tale hálsmen
Vörulýsing
Fairy Tale skartgripalínan okkar er öll smíðuð úr 14kt gulli og hvítagulli. Skartgripirnir í línunni eru með með perulaga náttúrusteinum og demöntum.
Skartgripirnir í línunni eru einstakir, keðjurnar á hálsmenunum eru demantsskornar með fínlegu mynstri, steinar og demantar eru einnig allir í toppgæðum.
Fairy Tale hálsmenið er einstaklega fallegt og stílhreint:
▪ Festin er stillanleg frá 42-47cm
▪ Festin sjálf er fínleg og demantsskorin.
▪ Val um að hafa þrjá demanta í meninu, stærð samtals = .02 ct
▪ Perulaga eðalsteinninn er um 7x5mm
▪ Hálsmenið er fáanlegt með náttúrusteinunum:
- Ametyst ljósfjólublár
- Peridot ljósgrænn
- Rose quartz fölbleikur
- Topaz ljósbláum
- Morganite fölbleikur/ljósbrúnn
▪ ATHUGIÐ að um náttúrusteina er að ræða svo að litatónn getur verið mismunandi og ekki alveg eins og myndir sýna.
▪ Sjón er sögu ríkari.
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Usually ready in 24 hours
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 14kt gulli.
Við notum 14kt gull vegna þess að það er harðara en 18kt gull og hentar því einkar vel fyrir skartgripi sem notaðir eru dags daglega.
Við bjóðum þó upp á sérsmíði með 18kt gulli ef viðkomandi óskar eftir því.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.























