Cube + Shiny Tiny hálsfesti með steinum - rhodium

kr31,000

Vörulýsing

Settið inniheldur fínlega keðju með kubbum á milli úr Cube línunni okkar og vinsælu Shiny Tiny hálsfestina sem er með 9 hvítum Cz steinum en hún er einkar fínleg eins og nafnið gefur til kynna.

Cube hálsfesti: 

▪ 925 silfur og rhodium

▪ Háslfestin er stillanleg frá 40-50cm

▪ Kubbarnir sem tengja armbandið saman eru 2x2mm

▪ Festin er stílhrein, fínleg og glansandi

 

Shiny Tiny festin: 

▪Mjög fínlegt hálsmen með cz steinum.

▪Shiny tiny hálsmenið er stillanlegt frá 40-45cm.

 

Cube & Shiny Tiny fæst einnig með 18kt gyllingu.

Efniviður

Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli. 

Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.