"Ég er svo glöð að hafa svarað eftirspurninni varðandi giftingarhringa ❤
Að hafa gott úrval og að geta veitt framúrskarandi þjónustu varðandi hugmyndir og val giftingarhringa og öllu sem viðkemur stóra deginum er eitthvað sem við í BY-L elskum!

Hlökkum til að taka þátt í stóra deginum ykkar."

- Lovísa Halldórsdóttir, gullsmiður & eigandi

----

Það gleður okkur að segja ykkur frá því að eftir langan undirbúning erum við komin í giftingarhringana!

Samhliða því höfum við stóraukið úrvalið okkar af trúlofunarhringum og demantsskartgripum. Áður fyrr voru giftingarhringar sérpöntun en núna er úrvalið okkar TRYLLT!

Hér finnur þú sérstaka
brúðkaupssíðu þar sem við höfum tekið saman þetta helsta sem viðkemur stóra deginum - giftingarhringa, trúlofunarhringa, morgungjafir og skartgripi fyrir stóra daginn.

Enn sem komið er, er úrvalið á netinu ekki tæmandi og því mælum við einnig með heimsókn til okkar í Silfursmárann þar sem verslun okkar og verkstæði er.

Við bjóðum að sjálfsögðu áfram upp á sérsmíði og höfum við bætt við þeim möguleika að bóka ráðgjöf með gullsmiðunum okkar - þú getur gert að með því að smella hér eða  þegar þú kemur við í búðinni.