Silfurhreinsir frá Sambol – 150 ml
Gat ekki hlaðið afhendingarstað
Vörulýsing
Fljótleg og einföld leið til að fríska upp á skartgripinn þinn
Silfur missir oft glansinn með tímanum, en með þessu silfurhreinsibaði frá Sambol næst hann aftur á augabragði. Hreinsibaðið fjarlægir oxun og bletti á örfáum sekúndum og skartgripurinn þinn verður aftur tandurhreinn og glansandi.
Eiginleikar Sambol:
• Hreinsar bletti og oxun á nokkrum sekúndum.
• Einfalt og þægilegt í notkun – dýfa, skola, þurrka!
• Meðfylgjandi ílát og rist gera notkunina enn einfaldari.
• Dollan inniheldur 150 ml – dugar því lengi.
Auðvelt í notkun:
1. Dýfðu skartgripnum í lausnina í nokkrar sekúndur.
2. Skolaðu með köldu vatni.
3. Þurrkaðu með mjúkri tusku - skartgripurinn er orðinn skínandi hreinn!
4. Til að fá extra póleringu – notaðu fægiklútinn í lokin.
Gott að vita:
1. Ekki dýfa perlum eða öðru viðkvæmu í hreinsinn, það missir gljáann.
2. Það má nota silfurhreinsinn á gullhúðað silfur eða gullskartgripi, en passaðu vel að dýfa skartgripnum aðeins í örskamma stund í einu og skola vel með köldu vatni á milli - silfurhreinsirinn er nefnilega sterkari en gullhreinsirinn frá Sambol!
Sambol – Vönduð og ábyrg framleiðsla
Sambol er þýskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í hreinsivörum fyrir eðalmálma frá árinu 1994. Vörurnar þeirra eru notaðar víða í Evrópu af bæði fagfólki og almenningi. Áhersla er lögð á gæði, einfaldleika og umhverfisábyrgð – án skaðlegra efna og með virku innihaldi sem virkar áreiðanlega aftur og aftur.
Efniviður
Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli.
Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhoodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.
Hvernig á að hugsa um skartgripi?
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@bylovisa.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skilafrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með póstinunum er hægt er að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr. bæði með Póstinum og Dropp.