Örkörk hálsfesti + hálsmen með tígrisauga - gyllt
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst
Vörulýsing
Fallegt sett af tveimur hálsmenum úr Örkörk línunni okkar sem inniheldur hálsfestina og hálsmen þar sem 4x arkir hlekkjast fallega saman á fínlegri keðju með einni örk og tígrisauga sem hangir niður.
Vegleg hálsfesti í Örkörk línunni! Hálsfestin raðast saman af mörgum örkum sem hlekkjast fallega saman.
▪925 silfur með 18kt gyllingu
▪Keðjan er stillanleg frá 42-47cm
▪Hálsfestin er fáanleg í gylltu og rhodium
Falleg hálsfesti í Örkörk línunni! 4x arkir hlekkjast fallega saman á fínlegri keðjunni og svo hangir 1x örk niður með Tígrisauga.
▪925 silfur með 18kt gyllingu
▪Keðjan er stillanleg frá 42-47cm
▪Örkin og tígrisaugað sem hangir niður er um 2cm á lengd
▪Tígrisauga náttúrusteinninn er mislitur, allt frá því að vera brúnn yfir í svart, allt eftir því hvernig ljós fellur á hann.
▪Oft er sagt að Tígrisaugað veiti aukið sjálfstraust, hugrekki og styrk þess sem ber hann.
▪Hálsfestin er fáanleg í gylltu og rhodium
Örkörk er ný skartgripalína inn í vinsælu Örk línuna okkar en þær blandast einstaklega vel saman. Örkörk er fínlegri með smærri arkir, grófari áferð - einnig er náttúrusteinninn Tígrísauga í nokkrum skartgripum línunnar.
Efniviður
Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli.
Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.



