Gjafainnpökkun er innifalin 

Pöntun afgreidd eins fljótt og auðið er

Handsmíðað á verkstæðinu

Stormur Raw gullhálsmen

Verð kr215,000
Vörulýsing

Stormur Raw einkennist af hráum köntum og mörgum mislaga götum allan hringinn þar sem keðjan þræðist fallega í gegnum.  Hringurinn liggur því vel og leikur laus á keðjunni.  

▪ Hálsmenið er allt úr 14kt gulli

▪ Þvermál 15mm

▪ Hálsmenið er handsmíðað á 50cm weat keðju


Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörunúmer: 55-505
Stormur

Stormur er fyrsta herralínan okkar, hún er kraftmikil eins og nafnið gefur til kynna. Skartgripirnir eru karlmannlegir, áferðin á hráefninu er gróf en um leið mild út af dökku burstuðu áferðinni í bland við háglansandi fleti. 

Hluti línunnar er smíðaður úr 14kt gulli en öll línan fæst úr silfri með mattri /ox og glansandi/rhodium áferð. 

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 14kt gulli eða hvítagulli.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun þegar þarf.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.