Gjafainnpökkun er innifalin 

Pöntun afgreidd eins fljótt og auðið er

Frí sending - yfir 25.000 kr

Haf Pink hálsmen - Bleik perla

Verð kr18,700

Litur: Gyllt
Vörulýsing

Haf Pink er nýtt inn í Haf. Haf Pink einkennist af bleikum perlum, með þeim eru Rose Quartz náttúrusteinar í hluta línunnar og demantsskorin keðja með fallegum smáatriðum sem glitrar einstaklega fallega. 

▪ Keðjan er úr silfri 

▪ Bleik stór og vegleg perla 

▪ Keðjan er demantskorin með fallegum smáatriðum, stillanleg frá 45-50cm

▪ Fæst með 18kt gyllingu (gulllituð) og með rhodium húðun (silfurlituð)

Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Pöntun er yfirleitt afgreidd innan 24 klst


Haf

Haf línan okkar leit dagsins ljós árið 2020 & er alltaf jafn vinsæl. Haf skartgripalínan okkar er gerð á verkstæðinu okkar í Silfursmáranum. Haf Pink er ný lína inn í Haf - belikar perlur og Rose Quart náttúrusteinar. Keðjan er einstaklega falleg, hver hlekkur er demantsskorinn sem gerir það að verkum að hún glitrar mjög vel!

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri með ferskvatnsperlum og náttúrusteininum Rose Quartz. Ferskvatnsperlurnar eru náttúrulegar, ekta perlur sem þýðir að engar tvær eru nákvæmlega eins. Þar sem að Rose Quartz eru náttúrusteinar þýðir það að engir tveir steinar eru eins eða nákvæmlega eins á litinn, svo að blæbrigðamunur getur verið á steinunum.

Skartgripurinn fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt á litinn. Fæst einnig með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.