Gjafainnpökkun er innifalin

Pöntun afgreidd innan 24 klst.

Frí sending - yfir 25.000 kr

Frost hálsfesti hringlaga hlekkir

Verð kr28,600

Litur: Gyllt
Vörulýsing

Skartgripirnir í Frost eru fallega hrímaðir með demantsskurði sem gefur þeim skemmtiilega glansandi áferð.

▪ Hálsfestin er úr silfri

▪ Fæst með 18kt gyllingu (gulllituð) eða með rhodium húðun (silfurlitað)

▪ Hlekkirnir í Frost festinni eru hringlaga 6mm

▪ Frost hálskeðjan er 50cm löng, stillanleg frá 40-50cm

 

Hálsfestin er fullkomin ein og sér en líka með festum í öðrum línum.

 


Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörunúmer: 24-031
Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri og fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt. Með rhodium húðun en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það. Að síðustu með svartri rhodium húðun sem gerir skartgripinn svartan og glansandi.

Þessi keðja er framleidd á Ítalíu fyrir BY•L skartgripi. Ítalar eru sérfræðingar í keðjum og hafa verið leiðandi í tækni og framleiðslu keðja í áraraðir. Það kom því ekkert annað til greina en að finna góða og trausta samstarfsaðila á Ítalíu sem sjá um framleiðslu á öllum okkar keðjum.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum er ekki hægt að skipta/skila.